Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 91
91. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar þriðjudaginn 22. apríl 2008 kl. 16:15 í fundarsal Frumunnar Nýheimum.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson, Elín Magnúsdóttir, Björk Pálsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir.
- Fundargerð 90. fundar lögð fram til kynningar.
Athugasemdir bárust um það hverjir voru fundarmenn á 90 fundi. Fundarmenn voru Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Guðrún Júlía Jónsdóttir.
- Þjónustusamningurinn staða mála.
Framkvæmdastjóri og formaður greindu frá stöðu mála. Fram kom að tillaga að lausn þjónustusamnings er nú til umfjöllunar í Heilbrigðisráðuneytinu og Félagsmálaráðuneytinu. Lögð er áhersla á að HÖR fjalli um samninginn áður en skrifað verður undir.
- Samráðsfundur með eldri borgurum.
Ákveðið að HÖR haldi opinn fund fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu, um heilbrigðis- og öldrunarmál 7. maí á Höfn og 9. maí í Hofgarði. Framkvæmdastjóri og formaður sjá um undirbúning og skipulag fundanna. Elín lagði til að stýrihópi um fjölskyldustefnu í sveitarfélaginu verður sérstaklega boðið að koma og kynna starf sitt. Einnig er stefnt á að halda borgarafundi í sveitarfélaginu um heilbrigðismál þegar búið er að skrifa undir þjónustusamninginn.
- Kynning á niðurstöðu vinnustaðagreiningar hjá HSSA.
Hjúkrunarstjórarnir Ester og Ásgerður fóru yfir niðurstöðu könnunarinnar. HÖR lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðu vinnustaðagreiningarinnar hjá HSSA og hvetur HSSA til að starfa áfram í sama anda.
- Samráðsfundur heilbrigðisstofnana í Heilbrigðisumdæmi Suðurlands.
Framkvæmdaráð HSSA sagði frá fundi sem haldinn var 16. apríl sl. í Vík Mýrdal. Þar komu saman framkvæmdaráð heilbrigðisstofnana í Heilbrigðisumdæmi Suðurlands til að ræða hvernig auka megi samstarf milli heilbrigðisstofnananna. Á þessum fundi var einnig verið að kynna nýtt ferli í vistunarmatinu.
- Starfsmannamál.
Farið yfir starfsmannamál stofnunarinnar.
- Hækkun á verðskrá mötuneytis HSSA.
HÖR samþykkir að hækka verðskrá mötuneytis HSSA um 8,7% frá og með 1. maí n.k. samanber umræðu á síðasta fundi ráðsins.
- Önnur mál
a) Björk lýsir yfir ánægju sinni með málþingið sem haldið var um heilbrigðisþjónustu í dreifbýli 3 apríl sl. og óskar eftir að fá samantekt um málþingið. HÖR leggur áherslu á að gögn tengd málþinginu verði aðgengileg.
Fundi slitið kl. 17:50


