Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 90
90. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 19. mars 2008 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Björk Pálsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir.
- Fundargerð 89. fundar lögð fram til kynningar.
Engar athugasemdir.
- Þjónustusamningurinn staða mála.
Formaður greindi frá greinargerð bæjarstjóra, sem unnin var að beiðni Halldóru Bergljótar Jónsdóttur bæjarfulltrúa, um fundi og framlögð gögn varðandi endurnýjun á þjónustusamningi um rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála á Hornafirði. Einnig greindi formaður frá fundi bæjarráðs með Fjármálaráðherra 28. febrúar síðastliðinn. Fram kom að tillaga að lausn þjónustusamnings er nú til umfjöllunar í Heilbrigðisráðuneytinu. Tillagan inniheldur líka lausn á uppgjöri síðasta árs.
- Málþing 3 apríl.
Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir yfir ánægju með málþing um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni enda löngu orðið tímabært að þau mál verði sett á dagskrá á landsvísu.
- Rekstrarstaða.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir rekstrarstöðu HSSA. Staðan sýnir það hversu mikilvægt er að ljúka þjónustusamningi sem fyrst.
- Starfsmannamál.
Framkvæmdastjóri greindi frá að vel gengur að ráða í afleysingar í sumar. Mikilvægt er að ljúka gerð þjónustusamnings við HBR til þess að aflétta óvissu um framtíð stofnunarinnar. Það myndi líka gera Heilbrigðis- og öldrunarráði kleift, í samstarfi við starfsmenn HSSA, að setja aukinn kraft í stefnumótunarvinnu sem miðaði að því að koma á meiri festu í mönnunarmálum.
- Gæðaráð og gæðastefna.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir starfsemi Gæðaráðs HSSA. Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir yfir ánægju með gæðastefnu HSSA og samþykkir hana. Framkvæmdastjóri leitaði eftir áliti hjá Lauru Sch. Thorsteinson verkefnastjóra á gæða og lýðheilsusviði hjá Landlæknisembættinu og lýsti hún yfir ánægju sinni með gæðastefnuna. Verkefni sem eru í gangi eða eru að fara af stað eru m.a. Heimasíða HSSA, Ábendinga- og kvartanaferli, Umhverfisstefna, Gæðavísar úr RAI matinu, Gæðahandbók röntgentækja ofl.
- Hækkun á verðskrá mötuneytis HSSA.
Heilbrigðis- og öldrunaráð samþykkir að hækka gjaldskrá mötuneytis um 8,7%, en vísitala neysluverð hefur hækkað um 8,7% síðan í janúar 2006. Gjaldskrána á að endurskoða í framtíðinni m.t.t. til vísitölu neysluverðs.
- Önnur mál
a. Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu er ekki tilbúin Heilbrigðis- og öldrunarráð ítrekar ósk sína að félagsmálaráð fjalli um gjaldskrána.
Fundi slitið kl. 17:10


