Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs 39
39. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs í fundarsal ráðhúss Hornafjarðar 20. febrúar 2008 kl. 18:15
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson og Björk Pálsdóttir.
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir.
1.Staða um áramót
Ásta lagði fram drög að ársreikningi 2007 þar kom fram að eignir sjóðsins eru rúmlega 22,3 m.kr. innborganir voru um 3,2 m.kr. þar af vaxtatekjur um 2,4 m.kr., rekstrarkostnaður um 265 þúsund og styrkir á árinu voru um 1,6 m.kr.
2. Bréf frá Guðrúnu J. Jónsdóttur um styrk til að kaupa á tölvum í dagvist dags. 20. febrúar 2008
Beiðni um styrk til kaupa á 3 tölvum að upphæð kr. 447.300.- Samþykkt.
3.Bréf frá Félagi eldri borgara um styrk til kaupa á skjávarpa í sal Ekru
Beiðni um styrk til kaupa á skjávarpa í félagsmiðstöð aldraðra í Ekru að upphæð kr. 162.723.- Samþykkt.
4.Bréf frá Guðrúnu J. Jónsdóttur dags. 19. febrúar beiðni um styrk til tækjakaupa.
Beiðni um styrk til kaupa á sírita (monitor) fyrir hjúkrunarheimilið að upphæð kr.392.549.- Samþykkt.
Beiðni um styrk til kaupa á hjólavagni fyrir hjúkrunarheimilið að upphæð kr. 50.206.- Samþykkt.
Beiðni um styrk til kaupa á 5 blóðþrýstingsmælum fyrir hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð að upphæð kr. 45.000.- Hafnað
Samþykkt að fara yfir stofnskrá og úthlutunarreglu sjóðsins á næsta fundi.
Fundi slitið kl: 18:45


