Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis og öldrunarráðs 89
89. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 20. febrúar 2008 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Björk Pálsdóttir, Ásgeir Gunnarsson og Guðrún Ingimundardóttir.
Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ágerður K. Gylfadóttir og Nína Einarsdóttir.
Formaður bauð fundarmenn velkomna
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Drög að rekstrarniðurstöðu 31.12.07
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir drögum að rekstrarniðurstöðu HSSA 31.12.07. Fram kom að halli sé um 32.6 m.kr. og er fyrst og fremst tilkominn vegna skerðingar greiðslna frá Tryggingastofnun vegna hjúkrunarrýma og skerðingar á framlögum til heilsugæslu um 10 m.kr. Fara þarf vel yfir það hvers vegna framlög til heilsugæslu eru 10. m.kr. minni en gert var ráð fyrir í fjárlögum 2007.
3. Læknamál
Starfsmanna mál rædd. Mikill skortur er á hjúkrunarfræðingum, 2,5 stöðugildi af 4,8 stöðugildum hjúkrunarfræðinga eru setin á hjúkrunarsviði. Vel gengur að fá lækna til starfa í verktöku einnig var rætt um tillögu framkvæmdastjóra frá síðasta fundi.
4. Gæðastefna HSSA
Vinna er að hefjast að gæðastefnu HSSA, þverfaglegur stýrihópur verður myndaður á næstu dögum. Guðrún Júlía mun stýra þessari vinnu. Þegar er hafin vinna að heimasíðu HSSA, í teymi með öðrum stofnunum sveitarfélagsins.
5. Þjónustusamningur - staða mála
Árni Rúnar fór yfir stöðu mála. Vísað er til fyrri bókana um þetta mál. Mikilvægt er að niðurstaða fáist sem allra fyrst í uppgjöri ársins 2007 til að hægt sé að ljúka nýjum þjónustusamningi. Árni Rúnar greindi frá að bæjarráð mun hitta fjármálaráðherra í næstu viku.
6. Málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni
Árni Rúnar fór yfir undirbúninginn að málþinginu. Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að koma málþinginu á framfæri sem víðast.
7. Innsend bréf frá:
· Landlæknisembættinu um flutning vistunarmats til Landlæknisembættisins
Ásgerður greindi frá því að nú er kominn einn vistunarmatshópur fyrir heilbrigðisumdæmið Suðurland og vistanir á HSSA fara í gegnum vistunarmatshópinn. Enginn frá sveitarfélaginu Hornafirði situr í vistunarmatsnefndinni eða er varamaður. HÖR telur brýnt að sveitarfélagið Hornafjörður eigi skýra aðkomu að nefndinni.
· Heilbrigðisráðuneytinu vegna samráðsnefndir heilbrigðisumdæma- starfsreglur
Guðrún Júlía greindi frá því að samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands hefur verið stofnuð og eru framkvæmdastjórar heilbrigðisstofnana Suðurlands umdæmis sjálfkrafa skipaðir í nefndina.
8. Önnur mál
a) Starfsfólk HSSA bendir á að báðir leikskólar sveitarfélagsins fara í sumarfrí á sama tíma og veldur þetta oft miklum vandræðum í starfsemi stofnunarinnar. Óska starfsmenn HSSA eftir því að þessi umræða verði tekin upp í bæjarráði.
b) Guðrún Ingimundardóttir benti á að námsleyfi starfsmanna eru misjöfn eftir stofnunum bæjarins. Árni greindi frá að fjallað hefur verið um þetta mál í bæjarráði þar sem hefur verið ákveðið hefur verið að setja reglur um námsleyfi starfsmanna þannig að allir starfsmenn sveitarfélagsins sitji við sama borð. Miklar umræður voru um þetta mál.
c) Björk minnir á að taka átti fyrir gjaldskrá um félagslega heimaþjónustu fyrir á þessum fundi.
d) Unnin var viðhaldáætlun fyrir fasteignir heilsugæslunnar í fyrra og verið er að vinna viðhaldsáætlun fyrir fasteignir hjúkrunarheimilisins. Brýnasta málið núna er að gera við þakið á hjúkrunarheimilinu.
Fundi slitið kl: 18.10


