Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 86
86. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 5. desember 2007 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Björk Pálsdóttir, Ásgeir Gunnarsson og Guðrún Ingimundardóttir.
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir, Hjalti Þór Vignisson , Ester Þorvaldsdóttir, Nína Einarsdóttir og Ágerður K. Gylfadóttir.
1. Fundargerð 85. fundar lögð fram til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2008
Ásta fór yfir fyrstu drög að fjárhagsáætlun, þar er gert ráð fyrir að tekjur verði um 403 m.kr. og er þá gert ráð fyrir fullri nýtingu hjúkrunarrýma, laun og launatengdur kostnaður verði 285,7 m.kr. og annar kostnaður 117,1 m.kr. Gert er ráð fyrir að reksturinn sé í jafnvægi. Þar sem enn liggur ekki fyrir þjónustusamningur við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið fresta Heilbrigðis og öldrunaráð afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar og vísar henni til áframhaldandi vinnslu.
3. Rekstrarstaða HSSA 31. október 2007
Ásta fór yfir rekstrarstöðu 31.10.07 Þar kemur fram að halli er rúmlega 7,1 m.kr. Framlög er 77,6% af áætlun en ættu að vera m.v. fulla nýtingu 83,33% og munar það um 20,1 m.kr.
Gjöld erum í takt eða betri m.v. áætlun eða um 80,2%. en verið er að endurreikna laun skv. nýju starfsmati vegna ummönnunar á hjúkrunardeild og nær leiðréttingin til ársins 2005 Hækkun er um 3% það ár en um 1,5% 2006 og 2007.
4. Þjónustusamningur, staða mála
Hjalti greindi frá stöðu mála. Árni lagði fram eftirfarandi bókun:
Heilbrigðis– og öldrunarráð Hornafjarðar krefst þess að fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra aflétti óvissu um framtíð reksturs HSSA. Ráðið bendir á að samskipti ríkis og sveitarfélagsin í þessum málaflokki hafi verið í lausu lofti síðan þjónustusamningur við heilbrigðs – og tryggingamálaráðuneytið rann út um síðustu áramót. Þessi óvissa stendur framþróun í starfi stofnunarinnar fyrir þrifum og mun á endanum koma niður á þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Ráðið hvetur ráðherrana til þess að kynna sér þann árangur sem náðst hefur á samningstímanum. Til marks um það hefur þjónusta utan stofnana verið stórefld á og einstaklingum í langlegu fækkað umtalsvert.
HÖR samþykkir framlagða bókun.
5. Önnur mál.
Samþykkt að taka skýrslu ráðgjafa Capacent um læknamál fyrir á næsta fundi HÖR. Jafnframt að fjalla um þjónustukönnun landlæknis.
Björk gerði grein fyrir fundi með landlækni fyrir skömmu. Ein hugmynd var að bjóða út læknisþjónustu hér á staðnum og hvatti til þess að sá kostur yrði skoðaður.
Fundi slitið kl. 17.30


