Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 85
85. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 24. október 2007 kl. 16:15 í kaffistofu ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Björk Pálsdóttir, Ásgeir Gunnarsson og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Nína Einarsdóttir og Ágerður K. Gylfadóttir.
1. Fundargerð 84. fundar lögð fram til kynningar.
Engar athugasemdir.
2. Þjónustusamningurinn, Hjalti kynnir stöðu mála.
Hjalti sagði frá fundi með Berglindi Ásgeirsdóttur, ráðuneytisstjóra í Heilbrigðis- og Tryggingaráðuneytinu 19. október sl. Verkaskipting á milli heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis og félagsmálaráðuneytis er ekki á hreinu varðandi rekstur hjúkrunarheimila, niðurstaða í verkaskiptingunni ætti að liggja fyrir í nóvember, þangað til eru ekki forsendur til að halda áfram viðræðum við ráðuneytið. Í samninga viðræðum er unnið eftir, þeim drögum að þjónustusamningi sem skrifa átti undir í maí síðastliðnum. Mikilvægt að tryggja rekstrargrunn HSSA og stöðugleika í læknamálum.
Ester víkur af fundi kl:16.50.
3. Læknamálin.
Hjalti greindi frá heimsókn Friðfinns Hermannssonar ráðgjafa hjá Capacent. Einnig að hafin er undirbúningsvinna að kynningarefni fyrir sveitarfélagið sem Björg Erlingsdóttir framkvæmdastjóri menningarmiðstöðvarinnar mun stýra.
Hjalti vék af fundi kl: 17.10.
4. Rekstrarstaða HSSA 30. september 2007
Guðrún Júlía fór yfir 9 mánaða rekstrarstöðu. Heilbrigðis- og öldrunarráð ítrekar bókun sína frá 84. fundi varðandi skerðingar á greiðslum tryggingastofnunar til HSSA.
5. Önnur mál.
Engin önnur mál.
Fundi slitið kl. 17.20


