Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 83
83. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 22. ágúst 2007 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ágerður K. Gylfadóttir.
- Fundargerð 82. fundar lögð fram til kynningar.
Engar athugasemdir.
- Þjónustusamningur staða mála.
Árni greindi frá stöðu mála í samningaviðræðum við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
- Sjö mánaða rekstrarstaða.
Guðrún Júlía skýrði nefndarmönnum frá sjö mánaða rekstrarstöðu HSSA.
- Bréf Tryggingastofnunar dags. 5. júlí sl.
Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar tekur heilshugar undir athugasemdir framkvæmdastjóra HSSA í bréfi hans dags. 10. júlí 2007 til Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
- Skýrsla ríkisendurskoðunar.
Drög að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á HSSA sem framkvæmd var að frumkvæði sveitarfélagsins kynnt fyrir nefndarmönnum.
- Læknamál.
Mikil umræða skapaðist um stöðu læknamála í sveitarfélaginu í ljósi niðurstöðu þjónustukönnunar Capacent þar sem íbúar sveitarfélagsins voru spurðir um læknisþjónustu í sveitarfélaginu. Framkvæmdastjóra HSSA falið að koma með tillögur að leiðum til úrbóta á næsta fundi Heilbrigðis- og öldrunarráðs.
- Þjónustukönnun Capacent.
Niðurstöður þjónustukönnunar Capacent sem framkvæmd var fyrir sveitarfélagið kynnt fyrir nefndarmönnum.
- Ósk um umsögn á reglugerð um heilbrigðisumdæmi og heilsugæslustöðvar.
Heilbrigðis- og öldrunarráð tekur undir bókun bæjarráðs 20. ágúst en þar var eftirfarandi bókað:
,,Halldóra benti á að langt er í aðrar heilbrigðisstofnanir og mikilvægt að minna á sérstöðu okkar að því leyti.”
- Önnur mál:
a) Formaður þakkar Jóhönnu Kristjánsdóttur hjúkrunarstjóra samstarfið og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni um leið var Ásgerður Gylfadóttir boðin velkomin til starfa.
Fundi slitið kl. 17.50


