Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 81
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar mánudaginn 7. maí 2007 kl. 15:15 í kaffistofu ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir og Hjalti Þór Vignisson.
1. Ársreikningar HSSA árið 2006 lagðir fram til samþykktar
Ásta fór yfir reikningana. Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir reikningana og vísar þeim til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
2. Önnur mál
A. Umræður um Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs.
B. Formaður óskar eftir heimild til að undirrita hugsanlega viljayfirlýsingu milli Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um áframhaldandi þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál á A- Skaftafellssýslu og var það samþykkt.
Fundi slitið kl. 17:00


