Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerði heilbrigðis- og öldrunarráðs 80
80. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 18. apríl. 17:00 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Lilja Hrund Harðardóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
- Fundargerð 79. fundar lögð fram til kynningar
- Þjónustusamningur – staða mála
Árni upplýsti stöðu mála varðandi þjónustusamning. HÖR leggur enn sem fyrr ríka áherslu á að tekið verði tillit fæðinga í fjárveitingum í þjónustusamningi. Einnig leggur HÖR til að gerð verði viðhaldsáætlun fyrir HSSA og minnir á að aðeins er lokið fyrsta áfanga hjúkrunarheimilis og breyta þarf tvíbýlum í einbýli.
- 3ja mánaða rekstrarstaða
Guðrún Júlía kynnti 3 mánaða rekstrarstöðu HSSA. Athygli er vakin á því að ársreikningar HSSA hafa ekki komið til umræðu í HÖR.
- Gjaldskrá mötuneytis
Meirihluti HÖR leggur til að gjaldskrá mötuneytis HSSA lækki um 6,1% vegna lækkunar virðisaukaskatts 1. mars 2007. Ákvörðunin er afturvirk til 1. mars sl. Einnig kom fram að gjaldskrá mötuneytis HSSA hefur ekki hækkað frá því 2004. HÖR er sammála um að samræma eigi gjaldskrár mötuneyta sveitarfélagsins og vísar því til umræðu í bæjarráði.
Ester víkur af fundi kl: 18.10.
5. Innsend erindi
Kynnt var erindi sem hefur borist frá Þorbjörgu Helgadóttur um slæmt aðgengi fatlaðra að hjúkrunarheimilinu. HÖR beinir þessu erindi til bæjarráðs. Einnig bendir HÖR á slæmt aðgengi að sjúkraþjálfun.
Kynnt bréf frá dr. Julius J. Ivanusi í Þýskalandi varðandi hjúkrunarfræðinga og starfmönnum falið að vinna að málinu.
Önnur mál
a) Guðrún Júlía greindi frá því að Ásgerður K. Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin hjúkrunarstjóri hjúkrunarsviðs HSSA frá og með 1. ágúst 2007.
b) Björk spurði hvernig gengi með úttekt ríkisendurskoðunar á HSSA. Árni og Guðrún svöruðu fyrirspurninni.
c) HÖR lýsir yfir ánægju sinni með að næsta haust verði fjarnám í hjúkrun á Hornafirði kennt frá Háskólanum á Akureyri.
Fundi slitið kl. 18.30


