Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð þjónustuhóps aldraðra 14
14. fundur
Mættir voru: Ragnhildur Magnúsdóttir, Vilborg Einarsdóttir Jóhanna Kristjánsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir og Jón Rögnvaldsson..
1. Úthlutun íbúða að Víkurbraut 26
Jón Kr. kynnti umsóknir fyrir nefndarmönnum. Nefndin ályktaði að annar einstaklingurinn væri í mjög brýnni þörf fyrir íbúðina og mælir því með umsókn dagsettri 26.06.2006.
2. Biðlistará hjúkrunar- og dvalardeild HSSA
Jóhanna kynnti að 7 væru á biðlista fyrir hjúkrunardeild. Einn er að biðlista fyrir dvalardeild.
3. Vistunarmat aldraðra
Jón Kristján kynnti tilkynningu frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu vegna vistunarmats aldraðra um að það flyst til Landlæknisembættisins.
4. Önnur mál
5. Athugasemd vegna aukaþrifa
Athugasemd barst varðandi þrif á vegum félagslegrar heimilisþjónustu. Hvert eigi að leita eftir þeirri þjónustu með með þrif t.d. á gluggum og eftir skápum.
Nefndin ákvað að hittast á 3ja mánaða fresti en kallað verður til fundar ef erindi berast inn.
Fundi slitið kl. 16:10


