Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 33
33. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs í fundarsal ráðhúss Hornafjarðar 20. desember 2006.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson og Björk Pálsdóttir.
1. Staða sjóðsins
Guðrún Júlía Jónsdóttir gerði grein fyrir stöðu sjóðsins.
2. Stofnbúnaðarkaup
Jóhanna Kristjánsdóttir gerði grein fyrir svigrúmi HSSA til stofnbúnaðarkaupa.
3. Ósk um styrk til kaupa á myndbandsspólum og stafrænum mynddiskum
Beiðni dags. 5. desember 2006 undirrituð af Þorbjörgu Helgadóttur. Óskað er eftir styrk að upphæð kr. 38.830,- til kaupa á myndbandsspólum og stafrænum mynddiskum. Beiðnin samþykkt.
4. Ósk um styrk til að bæta lýsinga á hjúkrunardeild
Beiðni dags. 1. desember 2006 undirrituð af Jóhönnu Kristjánsdóttur um styrk að upphæð kr. 60.000,- til að bæta lýsingu á hjúkrunardeild HSSA. Farið fram á kaup á 4 borðlömpum og 4 standlömpum. Beiðnin samþykkt.
5. Eyðublað fyrir styrkbeiðnir
Björk lagði til að búið verði sérstakt eyðublað fyrir styrkbeiðnir. Aðrir fundarmenn tóku vel í hugmyndina og formanni falið að vinna að framgangi hennar.
6. Fyrirspurn um minningarkort
Ásgeir spurðist fyrir um minningarkort Skjólgarðs og prentun á þeim. Formanni falið að vinna að málinu með starfsmönnum fyrir næsta fund.


