Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 77
77. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar þriðjudaginn 09. janúar 2007 kl. 16:15 í skirfstofu framkvæmdastjóra HSSA.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, og Ester Þorvaldsdóttir.
Drög að þjónustusamningi
Rætt var um drög að þjónustusamningi sem lögð voru fram á fundi í Heilbrigðis ? og tryggingamálaráðuneytinu þann 28. desember síðastliðinn.
Heilbrigðis ? og öldrunarráð Hornafjarðar leggur enn sem fyrr ríka áherslu á að Austur ? Skaftafellssýsla sé a.m.k. þriggja lækna hérað. Svæðið er læknisfræðilega einangrað og til þess að unnt sé að viðhalda ásættanlegri heilsulgæsluþjónustu er mikilvægt að Heilbrigðis ? og tryggingamálaráðuneytið viðurkenni að hér sé um þriggja lækna hérað að ræða.
Heilbrigðis ? og öldrunarráð furðar sig á því að ekki er gert ráð fyrir fæðingum á Hornafirði í drögum að nýjum þjónustusamningi.
Ennfremur leggur Heilbrigðis ? og öldrunarráð áherlsu á að stórefling heimahjúkrunar á starfssvæði HSSA verði metin í nýjum þjónustusamningi. Aukið framlag vegna heimahjúkrunar mun gera Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands kleift að halda áfram að vinna að því að gera öldruðum mögulegt að búa sem lengst á eigin heimili og fækka þar með í langlegu á stofnunum.
Einnig var starfsmönnum falið að fara þess að leit við Ríkisendurskoðun að hún geri stjórnsýslu ? og fjárhagsúttekt á HSSA.
Fundi slitið 17:55


