Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 76
76. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 20. desember 2006 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram
Engar athugasemdir.
2. Þjónustusamningur - staða viðræðna
Guðrún Júlía og Ásgeir fóru yfir stöðuna og sögðu frá fundi í heilbrigðisráðuneytinu 15. nóv. s.l. Árni greindi frá því að stefnt væri að fundi með ráðuneytinu milli jóla og nýárs. Heilbrigðis – og öldrunarráð lýsir yfir fullum stuðningi við þau samningsmarkmið sem lögð voru fram og samþykkt á fundi ráðsins 14. nóvember síðastliðinn. Ráðið hvetur ennfremur Heilbrigðis – og tryggingamálaráðuneytið til þess að hraða sinni vinnu og ganga til samninga við sveitarfélagið.
3. 11 mán. rekstrarstaða
Guðrún Júlía kynnti 11 mánaða rekstrarstöðu og skv. henni er halli um 15,7 m.kr. sem fyrst og fremst er vegna launa. Heilbrigðis – og öldrunarráð Hornafjarðar krefst þess að halli stofnunarinnar, sem fyrst og fremst er tilkominn vegna launabreytinga, verði leiðréttur í samningum við Heilbrigðis – og tryggingamálaráðuneytið. Óskað er eftir upplýsingum um uppsafnaðan halla stofnunarinnar fyrir næsta fund.
4. Samband ísl. sveitarfélaga bréf dags. 20. september vegna niðurstaða gerðadóms um kostnaðarskiptingu stofnkostnaðar sjúkrastofnana
Lagt fram bréf dags. 27. september frá Sambandi ísl. Sveitarfélaga, til kynningar, þar kemur m.a. fram að með breytingu á 34. gr. laga nr. 97/1990, sem gerð var með 11.gr. laga nr. 78/2003 voru sveitarfélög að fullu losuð undan skyldu til að greiða hlutdeild í kostnaði við stofnun, meiriháttar viðhald og tækjakaup vegna heilsugæslustöðva og svæðis-, deildar-, almennra sjúkrahúsa þar með talið kostnaður vegna hjúkrunarrýma.
5. Önnur mál
a) Guðrún Ingimundardóttir spurði hvort og hvenær Heilbrigðis-og tryggingarráðherra kæmi til að vígja röntgentækin. Svarað að ítrekað hefur verið haft samband við Heilbrigðis- og tryggingarráðuneytið en svar ekki fengist ennþá.
b) Guðrún Ingimundardóttir spurði út í starfsheitið virknisþjálfi starfsmenn svöruðu fyrirspurninni.
c) Spurt var út í stöðu læknamála. Guðrún Júlía greindi frá stöðu mála og lítur út fyrir meiri stöðugleika en verið hefur í þeim málum.
Fundi slitið kl. 17:00


