Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 74
74. fundur
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar
Fundargerð samþykkt.
2. Aðgerðir og áætlun heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra á sviði heilbrigðisþjónustu við börn og unglinga með geðraskanir.
Árni kynnti málið og sagði að HSSA fengi 1.m.kr. í framlag vegna þessarar áætlunar.
3. Þjónustusamningur, greint frá fundi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu 4. október sl.
Guðrún Júlía sagði frá fundinum og kynnti nýtt reiknilíkan ráðuneytisins varðandi framlög til HSSA. Einnig var farið yfir næstu skref í málinu.
4. Önnur mál
a) Guðrún Júlía kynnti drög að 9 mánaða uppgjöri, þar kemur fram að halli er rúml. 6 m.kr.
b) Guðrún Ingimundard. spurði út í bókasafn sem til var á gamla Skjólgarði og hvað hafi verið gert við það þegar flutt var frá Hvannabraut að Víkurbraut. Starfsmönnum falið að taka saman upplýsingar fyrir næsta HÖR fund.
c) Björk spurði um námskeið fyrir almenning á vegum HSSA.
Fundi slitið kl. 17:20


