Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 61
61. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 18. maí 2005, kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mættar voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra Guðmundsdóttir, Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir og Lovísa Bylgja Kristjánsdóttir
Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Rekstrarstaða janúar-apríl
Lagt var fram uppgjör fyrstu fjóra mánuði ársins, þar kom fram að tekjur eru um 33,4% af áætlun og gjöld um 33,2% af áætlun. Laun eru um 34,5 % af áætlun en búið er að greiða um 9,5 mkr. vegna starfsmats. Staða miðað við áætlun er viðunandi en ljóst er að launabætur frá ríki vegna starfsmats verða að greiðast sem fyrst.
3. Flutningur á mötuneyti
Guðrún fór yfir málið og lagði fram drög að teikningum frá tæknideild. Búið er að gera gróft kostnaðarmat en vinna þarf betri kostnaðargreiningu áður en ákvörðun verður tekin.
4. Önnur mál
Stefnt skal að næsta fundi 1. júní. Fundi slitið kl. 16:47.Egill Jón Kristjánsson Heimir Þór Gíslason Albert Eymundsson Baldur P. Thorstensen Margrét Ingólfsdóttir Ásta H. Guðmundsdóttir Þorsteinn Sigfússon Maren Sveinbjörnsdóttir Svava Kr. Guðmundsdóttir


