Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 68
68. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 15. febrúar 2006, kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir, Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Bylgja Kristjánsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Dagskrá
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar
2. Skipurit HSSA
Guðrún lagði fram tillögu að skipuriti og og fór yfir þær breytingar sem hafa orðið frá síðasta fundi, einnig lagði hún frá fjögur bréf dags. 18. janúar og 14. febrúar frá starfsmönnum varðandi skipuritið. Miklar umræður urðu um málið. Kristín G. Gestsdóttir er á móti þessari tillögu vegna þeirra bréfa sem borist hafa frá starfsmönnum og telur að framkvæmdastjóri eigi að ná sáttum um skipurit stofnunarinnar. Heilbrigðis og öldrunarráð leggur til að leitað verði leiða til að heimaþjónustan og dagvist falli undir sama svið innan skipuritsins en gerir ekki athugasemd við aðra þætti skipuritsins.
3. Drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu
Bréf frá bæjarráði frá 9. febrúar sl. varðandi umsögn um frumvarpið Heilbrigðis og öldrunarráð leggur til að gerður verði nýr þjónustusamning við heilbrigðisráðuneytið um heilbrigðis og öldrunarþjónustu í Austur Skaftafellssýslu.
4. Samþykkt launanefnar um breytingu á kjarasmaningi Bókun bæjarráðs frá 9. febrúar sl.
Til kynningar
5. Sala á Hvannabraut 3-5 og staða framkæmda
Til kynningar.
Guðrún Júlía sagði frá stöðu framkvæmda og sagði að fyrirhugað sé að flytja eldhúsið í næstu viku og gerir ráð fyrir að dvalarheimilið flytji upp úr mánaðarmótum. Stefnt er að því hafa opið hús hjá HSSA í tilefni flutningsins.
Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að sú þjónusta sem fyrir er á Hvannabraut 3-5 skerðist ekki við flutningana.
6. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:20.


