Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
35. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss þriðjudaginn 21. maí 2002, kl. 16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Maren Ó Sveinbjörnsdóttir, Heimir Þór Gíslason, Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ingibjörg K. Ingólfsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Ingibjörg K. Ingólfsdóttir var boðin velkomin, en hún er nýr fulltrúi starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar í HÖR.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir.
1. Reikningar HSSA fyrir árið 2001
Heilbrigðis- og öldrunarráð undirritaði reikninga HSSA fyrir árið 2002.
2. Stefnumótun heilbrigðis- og öldrunarmála til 2010 – lokaafgreiðsla
Halldóra fór yfir texta sem bætt hefur verið inn í stefnumótunina, texta þar sem lýst er stöðunni á hjúkrunardeild HSSA í dag :
Í dag (maí 2002) eru 30 sjúklingar vistaðir á hjúkrunardeild HSSA, hámarksfjöldi er 28 sjúklingar skv. þjónustusamningi. Á sjúkraganginum eru 2 sjúklingar í einbýlum, 5 í fjögurra manna stofu, 1 í skoðunarherbergi, 1 sjúklingur í tveggja manna stofu og 14 sjúklingar í sjö tveggja manna stofum. Í vesturenda deildarinnar eru þrjú tveggja manna herbergi aflokuð með skilrúmi á ganginum. Skilrúmið var sett upp til bráðabirgða fyrir heilabilaða sjúklinga. Í þessum þremur herbergjum eru 7 sjúklingar.
Vegna þessa álags hefur innlögnum í bráðarýmin hefur fækkað og erfitt er að bjóða upp á hvíldarinnlagnir.
Á meðan ný bygging er ekki risin og ekki eru fleiri hjúkrunarrými í boði er ætlun stofnunarinnar að:
· Efla heimahjúkrun HSSA. Bjóða kvöld og helgarþjónustu þegar þörf krefur.
· Dagdvalaraðstaða var opnuð um síðustu áramót í kjallara Skjólgarðs að Hvannarbraut. Þangað koma einstaklingar sem dvelja yfir daginn og fá þar tilbreytingu og félagskap, aðstoð og föndur. Þessi þjónusta hefur verið mikið sótt og þegar orðin vinsæl meðal eldri íbúa Hafnar.
· Sá möguleiki er til staðar að nýta tímabundið hvíldarinnlagnir á sjúkrahúsi Seyðisfjarðar og á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað. Það er hins vegar ávallt neyðarúrræði að vista sjúklinga svo fjarri heimabyggð.
· Komið verður upp garði við deildina, þannig að sjúklingar geti fullnægt hreyfiþörf sinni í öruggu umhverfi.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir ofangreinda viðbótartexta við stefnumótunina.
3. Önnur mál
Jóhann lagði fram teikningu sem sýnir skipulagningu garðs við Heilbrigðisstofnunina.
Heimir sagðist óttast að erfitt verði að fá fjármagn frá ríkinu til viðbyggingar við hjúkrunarheimilið. Heimir spurði um biðlista á hjúkrunarheimilið. Jóhann upplýsti að 13 einstaklingar eru á biðlista.
Halldóra þakkaði samstarfið og óskaði nefndarmönnum velfarnaðar.
fundi slitið kl. 16:50


