Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
40. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarherbergi Nýheimabúða mánudaginn 26. febrúar 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Þorgils Baldursson, Margrét Ingólfsdóttir, Þorsteinn Sigfússon og Kristín Gestsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Baldur Thorstensen, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
2. Gjafa- og minningasjóður
Ásta fór yfir drög að uppgjöri sjóðsins 2002. Samkvæmt uppgjörinu eru eignir sjóðsins 31. des. s.l. 13,6 milljónir. Einnig lagði hún fram yfirlit 1998 – 2002 um rekstur sjóðsins þar sem fram kemur að höfuðstóll sjóðsins hefur vaxið um tæpar 4 milljónir á tímabilinu. Endurskoðaðir reikningar sjóðsins munu berast um leið og uppgjör sveitasjóðs og tengdra stofnana og verða þá lagðir fyrir nefndina til afgreiðslu..
Ásta lagði til að þegar fyrirhugaðar framkvæmdir hefjast við gerð útivistarsvæðis við HSSA, framkvæmdir sem sem Gjafa- og minningasjóður hyggst styrkja verði fyrstu greiðslur greiddar með inneign sjóðsins hjá HSSA.
Halldóra þakkar fráfarandi stjórn vel unnin störf.
Fram kom að umsóknir í sjóðinn hafi verið skriflegar og farið í gegnum framkvæmdaráð HSSA sem lagði mat á umsóknirnar. Samþykkt var að hafa fyrirkomulagið óbreytt. Rætt var um nauðsyn þess að útbúa umsóknareyðublað fyrir sjóðinn.
3. Nýr þjónustusamningur um fyrirkomulag heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu og rammasamningur um 2. áfanga við Hjúkrunarheimilið.
Jóhann kynnti nýjan þjónustusamning og fór einnig yfir rammasamning um 2. áfanga við Hjúkrunarheimilið.
Halldóra telur þörf á því í kjölfar samninganna að innra skipulag stofnunarinnar verði skoðað. Guðrún Júlía upplýsti að sífellt er verið að endurskoða og reyna að bæta þjónustuna á stofnuninni.
Halldóra ræddi samþykkt frá bæjarráði þess efnis að skýrsla um starfsemi stofnunarinnar verði gerð svo auðveldara verði að kynna starfsemina út á við.
4. Skipulag útivistarsvæðis við HSSA
Jóhann fór yfir fyrstu hugmynd landslagsarkitekts að skipulagningu garðsins.
Fram kom nauðsyn þess að landslagsarkitekt og framkvæmdaráð fundi um þær þarfir sem garðinum er ætlað að mæta og að ákveðið verði hvenær endanlegar teikningar eigi að liggja fyrir.
5. Önnur mál
Heilbrigðis- og öldrunarráð þakkar þær höfðinglegu gjafir sem stofnuninni hafa borist undanfarið og felur framkvæmdarstjóra að koma þakklæti á framfæri við þessa einstaklinga.
Rætt var um starfsmannamál.
fundi slitið kl. 17:40


