Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs
41. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarherbergi Nýheimabúða mánudaginn 9. april 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Þorsteinn Sigfússon og Kristín Gestsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ágústa Baldursdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Reksturinn 2002 – bráðabirgðauppgjör
Ásta fór yfir fyrirliggjandi uppgjör sem sent hefur verið endurskoðanda. Samkvæmt því eru heildartekjur stofnunarinnar kr. 280.000.574 og heildargjöld kr. 278.873.021 og rekstur því jákvæður um kr. 1.127.553 . Stofnunin fékk greiddar rúmar 16 milljónir á aukafjárlögum á árinu vegna halla síðustu tveggja ára. Peningaleg staða stofnunarinnar er enn neikvæð um rúmar 18 milljónir.
Framkvæmdarstjóra var falið að skilgreina þá þjónustu sem veitt er í heimaþjónustu hér, kanna hvernig þjónustunni er hagað annars staðar og gera drög að nýjum reglum um þjónustuna ef þörf þykir.
3. Kynning á 3ja mánaða stöðu - launagreiðslur stofnunarinnar jan – mars 2003
Ásta fór yfir stöðuna. Jóhann fór yfir launagreiðslur fyrstu þrjá mánuði ársins og sýndi samanburð við útborguð laun árið 2002. Launagreiðslur hafa hækkað um 5.5% og stefnir í talsverða framúrkeyrslu í launagreiðslum ársins. Æskilegt er að leggja strax vinnu í ítarlega launaáætlun fyrir stofnunina fyrir árið í heild.
4. Ræsting – á að bjóða hana út ?
Jóhann lagði fram samantekt á kostnaði við ræstingu á HSSA árin 1999 – 2002 og áætlun um kostnaðinn 2003. Framkvæmdaráð gerði samþykkt á fundi sínum þann 5. mars sl. þar sem lýst er yfir ánægju með núverandi fyrirkomulag ræstingarinnar. Heilbrigðis- og öldrunarráð felur framkvæmdastjóra að leita upplýsinga um hvernig fyrirkomulag ræstinga er á sambærilegum stofnunum annars staðar. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.
5. Útgáfa upplýsingabæklings
Jóhann lagði fram samantekt sem gerð hefur verið um starfsemi stofnunarinnar. Heilbrigðis- og öldrunarráð mun kynna sér yfirlitið. Erindið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.
6. Starfsmannamál
Jóhann sagði frá stöðu starfsmannamála stofnunarinnar. Nýr hjúkrunarfræðingur tekur til starfa um miðjan maí. Búið er að tryggja tvö stöðugildi lækna út sumarið. Viðræður eiga sér stað við sjúkraþjálfa. Mikil vöntun er á ófaglærðu vinnuafli í afleysingastörf hjá stofnuninni. Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir undrun á því að á sama tíma og atvinnuleysi er í sögulegu hámarki í sveitarfélaginu þá vantar enn afleysingu í 14 stöðugildi ófaglærðra hjá stofnuninni í sumar þrátt fyrir auglýsingar.
7. Önnur mál
Þorsteinn ræddi þakkarbréf vegna gjafa til stofnunarinnar og þörf fyrir matarsendingar út í dreifbýlið.
Framkvæmdastjóra var falið að útbúa þakkarbréf og að gera könnun á þörf eldri borgara í dreifbýlinu fyrir matarsendingar eða aðgengi að mötuneyti.
Halldóra sagði frá umræðu um endurskoðun á stefnu í heilbrigðis- og öldrunarmálum á óformlegum bæjarstjórnarfundi sem haldinn var 8. april s.l. Þar var m.a. rætt um mikilvægi heilsueflingar og breytt viðhorf til rekstrarforms dvalarheimila.
Halldóra spurði um stöðuna varðandi læknabústaðina, hvort selja eigi húsin eða gera úrbætur á þeim.
fundi slitið kl. 18:15


