Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fudnargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 66
66. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 16. nóvember 2005, kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Vignir Júlíusson, Halldóra Guðmundsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Bylgja Kristjánsdóttir, Borgþór Freysteinsson, Össur Imsland og Ágústa Baldursdóttir.
Formaður óskaði eftir breytingu á röðun dagskráliða og var það samþykkt. Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Eldhús
Össur og Borgþór lögðu fram teikningar og kostnaðaráætlun vegna flutnings á eldhúsi frá Hvannabraut á hjúkrunardeild Víkurbraut og fóru yfir athugasemdir frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands. Albert Eymundsson kom á fundinn undir þessum lið og greindi frá samtali við starfsmenn Heilbrigðisráðuneytis þar sem kom fram að gert er ráð fyrir að kostnaður vegna flutnings eldhúss eigi að greiðast af Heilbrigðisráðuneyti.
Tillaga 4 var samþykkt og vísað til áframhaldandi vinnslu.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Guðrún fylgdi áætluninni úr hlaði og sagði að hún væri miðuð við að dvalarheimili væri flutt á Víkurbraut 26 og eldhús á hjúkrunarheimili.
Helstu tölur: Framlög ríkis 304.8 m.kr. aðrar tekjur um 11 m.kr. sameiginlegur kostnaður færður á deildir 22,4 m.kr.
Tekjur samtals 338,2 m.kr.
Laun og launatengd gjöld 237,1 m.kr. annar rekstrarkostnaður um 101,2 m.kr. Samtals 338,2 m.kr.
Heilbrigðis og öldrunarráð samþykkir framlagða áætlun og vísar henni til umræðu í bæjarstjórn Hornafjarðar.
3. Níu mánaða uppgjör
Staða stofnunarinnar eftir níu mánuði er um 1,5 m.kr. afgangur og er reksturinn í samræmi við endurskoðaða fjárhagsáætlun, en ekki er komin niðurstaða í auknar greiðslur heilbrigðisráðuneytis vegna starfsmats.
Heilbrigðis og öldrunarráð ítrekar að HSSA fái launabætur vegna starfsmats frá ríki.
4. Dvalarheimili
Elín upplýsti um stöðu mála og sagði frá fundi með Búmönnum 14. nóv. sl. varðandi kaup á íbúðum í Ekru. Halldóra vék af fundi. Heilbrigðis og öldrunarráð samþykkir að leigja þessar íbúðir af Búmönnum og vísar málinu til bæjarráðs.
5. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17:05


