Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 64
64. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 6. október 2005, kl. 12:00 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ásta H. Guðmundsdóttir
Boðað var til aukafundar í heilbrigðis- og öldrunarráði varðandi málefni dvalarheimilisins.
Margrét mótmælir málsmeðferð bæjarráðs varðandi málið. Vignir sagði að málið hafir verið vísað til bæjarráðs 30. júní sl.
Heilbrigðis og öldrunaráð samþykkir samhljóða að dvalarheimili aldraðra að Hvannabraut verið flutt að Víkurbraut 26 skv. tillögum þrjú sem lögð var fyrir bæjarráð 29. sept. sl..
Fundi slitið kl. 12:30.


