Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 63
63. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 29. september 2005, kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Sigríður Lárusdóttir Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Til kynningar.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2005
Guðrún lagði fram endurskoðaða fjárhagsáætlun 2005 þar sem gert er ráð fyrir að reksturinn verði í jafnvæg. Heilbrigðis og öldrunarráð vísar fjárhagsáætluninni til bæjarráðs.
3. Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Félags aldraðra á Hornafirði
Til kynningar. Nokkrar umræður urðu um samninginn og töldu nefndarmenn hann vera frekar opinn.
4. Dvalarheimili
Málinu frestað til næsta fundar að beiðni formanns.
5. Önnur mál
Ragnhildur kynnti áform starfsmanna HSSA um söfnun til að endurnýja röntentæki á heilsugæslustöðinni.
Heilbrigðis og öldrunarráð fagnar þessu framtaki starfsmannana.
Fundi slitið kl. 17:30.


