Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 62
62. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 30. júní 2005, kl. 13:00 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Vignir Júlíusson, Margrét Ingólfsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Lovísa Bylgja Kristjánsdóttir
Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar.
Til kynningar.
2. Rekstrarstaða janúar-maí
Lagt var fram uppgjör fyrstu fimm mánuði ársins, þar kom fram að tekjur eru um 41,3% af áætlun og gjöld um 41,0% af áætlun. Laun eru um 42,6 % af áætlun. Staða miðað við áætlun er viðunandi en ljóst er að launabætur frá ríki vegna starfsmats verða að greiðast svo ekki komi til hallareksturs. Guðrún lagði fram minnisblað dags. 30. júní 2005 varðandi stöðugildi og ársverk.
3. Dagvist aldraðra
Guðrún fór yfir málið og lagði fram bréf frá Félagi aldraðra á Höfn dags. 10. júní sl. þar sem félagið samþykkir að dagvist aldraðar verið starfrækt í þjónustumiðstöð Ekru að uppfylltum vissum skilyrðum. Unnið er að flutningi dagvistar í góð samstarfi við félag aldraðra eins og verið hefur og í framhaldi verði endurskoður samstarfssamningur milli sveitarfélagsins og félags aldraðra vegna breyttrar starfssemi í húsinu.
4. Dvalarheimili
Guðrún fór yfir stöðu dvalarheimilisins og upplýsti að það stefni í að einungis verði sjö heimilismenn á Skjólgarði frá og með 1. júlí n.k. Einnig upplýsti hún að enginn sé á biðlista eftir dvalarrými, vegna þessa stefnir í að tekjur vegna dvalarrýma verði 6 mkr. minni en áætlað var.
Heilbrigðis og öldrunarráð lagði fram eftirfarandi bókun:
Fækkun heimilismanna á dvalarheimilinu Skjólgarði er fyrirsjáanleg. Af því leiðir umtalsverð tekjulækkun og rekstrarvandi. Vegna þess leggur HÖR til að unnið verði að breytingum á dvalarheimili með það að markmiði að ná viðunandi rekstrarniðurstöðu og skapa heimilisfólki betri aðstæður. HÖR vísar málinu til bæjarráðs og leggur til að unnið verði út frá skýrslu starfsmanna HSSA sem lögð var fram í febrúar s.l. HÖR óskar eftir nákvæmu kostnaðarmati á fyrirhugaðar breytingar og leggur áherslu á að vandað sé til verka en jafnframt að málið fái sem skjótasta afgreiðslu.
5. Önnur mál
Guðrún upplýsti að málefini eldhússins sé í vinnslu og einnig ræddi hún um læknamálin.
Formaður þakkaði fyrir samveruna í vetur..
Fundi slitið kl. 14:25.


