Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 57
57. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar þriðjudaginn 25. janúar 2004, kl. 16:15 í fundarsal Frumunnar. Mættar voru: Halldóra B. Jónsdóttir, formaður, Margrét Ingólfsdóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir, Elínborg Baldursdóttir og Kristín Gestsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Hjalti Þór Vignisson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Albert Eymundsson.
Gengið var til dagskrá og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar.
Til kynningar.
2. Drög að uppgjöri 2004.
Ásta fór yfir drög að uppgjöri ársins 2004. Fram kom að fyrir liggjandi drög gera ráð fyrir betri útkomu en gert var ráð fyrir.
3. Skipulagsbreytingar á HSSA.
Halldóra Bergljót gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið og lýsti hugmyndum að skipulagsbreytingum og lagði fram skjal varðandi kostnaðarbreytingar á HSSA, dags. 25. janúar 2005. Helgi Már og Ásta fóru yfir samantekt sem fjármálasvið og tækni- og umhverfissvið unnu í janúar 2005. Guðrún Júlía lagði fram minnispunkta dags. 25. janúar 2005 með athugasemdum og viðbætum við samantekt fjármálasviðs og tækni- og umhverfissviðs. Allmiklar umræður sköpuðust um þær hugmyndir sem fram komu. Starfsmönnum falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Erindisbréf fyrir starfshóp um mötuneytismál.
Hör leggur til að haft verði samráð við starfshóp um lýðheilsumál.
Hör tilnefnir Halldóru Bergljót Jónsdóttur.
5. Skoðun á varaafli og rafmagnsmálum fyrir HSSA.
Fyrir lá samantekt unnin af Rafhorni um varaafl og rafmagnsmál fyrir HSSA þann 15. janúar 2004. Starfsmönnum falið að vinna að málinu áfram.
6. Reglur um félagslega heimaþjónustu.
Fyrir fundinum lágu umsagnir félagsmálaráðs og deildarstjóra heimaþjónustudeildar. Starfsmönnum falið að taka umsagnirnar til skoðunar og gera tillögu að reglum og leggja fyrir á næsta fundi.
7. Framkvæmdastjórastaða HSSA.
Albert gerði grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur verið fram á undanförnum dögum vegna framkvæmdastjóra stöðu HSSA.
8. Önnur mál
Halldóra las upp bréf þar sem óskað var trúnaðar.
Halldóra lagði til að áfangaskýrslu nefndar um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga verði tekin fyrir á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 19:40


