Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 55
55. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss mánudaginn 15. nóvember 2004, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir, Kristín Gestsdóttir og Margrét Ingólfsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir og Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rekstrarstaða HSSA – 10 mánaða uppgjör
Inga Jóna lagði fram 10 mánaða uppgjör fyrir stofnunina. Staðan nú er neikvæð um rúmar 14 milljónir en endurskoðuð áætlun ársins gerir ráð fyrir rúmlega 7 milljón kr. halla. Fjárheimildir sem samþykktar hafa verið til stofnunarinnar verða greiddar um næstu mánaðarmót samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Fram kom að reynt verður eftir fremsta megni að draga úr útgjöldum það sem eftir lifir árs.
Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að óvissuástandi um fjárhag stofnunarinnar verði aflétt sem fyrst og aukin þungi verði lagður í viðræður við heilbrigðisráðuneytið um málið.
2. Tillögur að reglum HSSA um námsleyfi/námsferðir lækna
Ragnhildur yfirlæknir gerir athugasemdir við fram lagðar reglur, bendir t.d. á að þótt eðlilegt sé að setja hámark á greiðslur fargjalda þá sé eðlilegt að hægt sé að fara fleiri en eina ferð. Samþykkt að fresta málinu til næsta fundar og skoða fleiri útfærslur á reglum.
3. Umsókn í Gjafa- og minningarsjóð
Heilbrigðis- og öldrunarráð telur æskilegt að fresta ákvörðun um að veita styrk til kaupa á húsgögnum í setustofu og borðstofu á Skjólgarði í ljósi þess að ákveðið hefur verið að gera úttekt á ástandi hússins.
Framkvæmdastjóra HSSA falið að svara erindinu.
4. Önnur mál
Inga Jóna kynnti drög að endurskoðuðum að reglum um félagslega heimaþjónustu.
Samþykkt að taka málið fyrir aftur á næsta fundi og samþykkja reglur sem taki gildi frá 1. jan. 2005.
Lagt var fram minnisblað um helstu verkefni sem unnið hefur verið að s.s. varðandi viðhald ofl.
Kynntar voru hugmyndir að breytingum á skiptistofu og akútherbergi.
Framkvæmdastjóri tilkynnti að hún láti af störfum þann 1. desember n.k. Heilbrigðis- og öldrunarráð þakkar framkvæmdastjóra vel unnin störf í þágu HSSA og sveitarfélagsins á undaförnum árum.
Spurt var um lokaskýrslu Ásgeirs Ásgeirssonar um úttekt á starfsemi stofnunarinnar.
Fundi slitið kl. 17:40


