Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 52
52. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss mánudaginn 5. júlí 2004, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Kristín Gestsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Vignir Júlíusson. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rekstrarstaða HSSA 26. júní 2004
Inga Jóna fór yfir rekstrarstöðu stofnunarinnar. Staðan 26. júní er halli upp á tæpar 4,5 milljónir. Þyngstu mánuðirnir í rekstri eru sumarmánuðirnir og má því búast við að rekstrarhalli ársins verði að óbreyttu umtalsverður.
2. Ásgeir Ásgeirsson ráðgjafi HSSA mætir á fundinn
Ásgeir Ásgeirsson hefur verið ráðinn til að gera úttekt á stöðu Heilbrigðisstofnunarinnar. Ásgeir hefur mikla reynslu af rekstri heilbrigðisstofnana, starfar sem skrifstofustjóri á Sjúkrahúsi og heilsugæslu á Akranesi.
3. Önnur mál
Halldóra sagði frá fundi sem haldinn var með heilbrigðisráðherra 3. júlí sl. Stefnt er að því að halda fund með starfsmönnum ráðuneytisins síðari hluta ágústmánaðar. Fram að því munu starfsmenn safna saman og greina gögn um rekstur stofnaninnar.
Heilbrigðis- og öldrunarráð telur tímabært að auglýsa eftir nýjum framkvæmdastjóra stofnunarinnar.
fundi slitið kl. 17:10


