Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 50
50. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss þriðjudaginn 12. maí 2004, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Kristín Gestsdóttir, Þorsteinn Sigfússon og Maren Sveinbjörnsdóttir. Einnig Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Inga Jóna Halldórsdóttir og Ingibjörg Ingólfsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Reikningar HSSA fyrir árið 2003
Fjármálastjóri fór yfir ársreikninga stofnunarinnar 2003. Heildartekjur stofnunarinnar voru 283,9 millj. kr og heildargjöld 303,5 millj. kr. og var niðurstaðan því halli upp á 19,6 milljónir.
Ójafnað tap í efnahagsreikningi er nú 40 milljónir.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir fram lagða ársreikninga Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir árið 2003.
2. Reikningar Gjafa- og minningarsjóðs fyrir árið 2003
Eignir gjafa- og minningasjóðs nema 22,6 millj. kr. í árslok 2003. Hör kallar eftir upplýsingum um hvernig ávöxtun sjóðsins hefur verið undanfarið ár.
3. Rekstrarstaða HSSA 31. mars 2004
Samkvæmt 3ja mánaða yfirliti er halli stofnunarinnar 2,3 millj. kr.
4. Þjónustusamningurinn í heilbrigðis- og öldrunarmálum
Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar ítrekar fyrri bókanir um alvarlega stöðu stofnunarinnar. Verði ekki teknar upp viðræður sem leiða til þess að ásættanleg leiðrétting náist á þjónustusamningnum og eldri halla skorar heilbrigðis- og öldrunarráð á bæjarráð að íhuga alvarlega uppsögn samningsins.
5. Garður heilabilaðra á hjúkrunardeild HSSA
Guðrún Júlía fór yfir stöðu framkvæmda sem eru langt komnar.
6. Önnur mál
Lögð var fram drög að skýrslu um stjórnun, skipulag og starfslýsingar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands sem IMG vann fyrir heilbrigðis- og öldrunarráð.
fundi slitið kl. 19:20


