Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis - og öldrunarráðs 49
49. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Frumkvöðlaseturs þriðjudaginn 24. febrúar 2004, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Elínborg Baldursdóttir og Maren Sveinbjörnsdóttir. Einnig Jóhann Ólafsson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Inga Jóna Halldórsdóttir og Ágústa Baldursdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Staða HSSA 30. des. 2003
Jóhann fór yfir stöðuna en skv. henni stefnir í tæplega 18 milljón kr. halla árið 2003. Jóhann fór yfir orsakir hallans en krafa er um að stofnunin fái um helming hans bættan frá heilbrigðisráðuneytinu.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Heilbrigðis- og öldrunarráð telur ekki fært að ljúka fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2004. Fyrir síðustu áramót var farið fram á endurskoðun á þjónustusamningi um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í sveitarfélaginu en enn hafa viðræður ekki hafist.
Heilbrigðis- og öldrunarráð gagnrýnir harðlega að ráðuneytið hafi ekki brugðist við fyrr og hafið viðræður um málið. Á meðan er rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands í upplausn og ekki hægt að ljúka fjárhagsáætlunargerð ársins.
3. Önnur mál
Halldóra greindi frá því að Leifur Benediktsson hefur verið skipaður af heilbrigðisráðuneytinu í nefnd til undirbúnings byggingar 2. áfanga við hjúkrunarheimilið. Aðrir fulltrúar, tilnefndir af sveitarfélaginu eru Halldóra B. Jónsdóttir og Jóhann Ólafsson.
Guðrún sagði frá vinnu við innra gæðaeftirlit á stofnuninni.
Fundi slitið kl. 17:40


