Endurskoðun Aðalskipulags

Fundargerð starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi 3

3. fundur

Fundur haldinn í Ráðhúsi fimmtudaginn 18. desember 2008 kl 14:30 Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Haukur Ingi Einarsson

 
  1. Verkaskipting vegna endurskoðunar á Aðalskipulagi.

    Fundarmenn samþykktu framlögð drög að verkaskiptingu þeirra aðila sem koma að vinnu við endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar.  Starfshópurinn var sammála um að verkaskiptingin verði opin fyrir breytingum á meðan vinnu starfshópsins stendur yfir.  Ennfremur var lögð áhersla á að vinna við endurskoðunina verði markviss og verði stefnumarkandi fyrir samfélagið í heild sinni svo sem skipulagsmál, atvinnumál og umhverfismál.

  2. Verk- og tímaáætlun

    Starfhópurinn er sammála um að síðari umræða um endurskoðun á aðalskipulagi fari fram eigi síðar en í desember 2009. 

    Starfmanni falið að undirbúa gögn sem send verða út til nefnda til umfjöllunar og umsagnar.

    • Önnur mál
      Starfhópurinn er sammála að hittast aftur milli hátíða og fara yfir framlögð gögn sem senda á til nefnda.

      Starfshópurinn óskar eftir því að fá þá aðila sem halda utan um kortagrunn sveitarfélagsins og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs á fund til sín í janúar.

 

 Fundi slitið kl: 15:00


Fundargerðir

Dag.grein
14.04.2009 Fundargerð starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi 5
29.12.2008 Fundargerð starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi 4
18.12.2008 Fundargerð starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi 3
06.11.2008 Fundargerð starfshóps um endurskoðun á Aðalskipulagi 2
31.10.2008 Fundargerð starfshóps um endurskoðun á Aðalskipulagi 1
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica