Endurskoðun Aðalskipulags
Fundargerð starfshóps um endurskoðun á Aðalskipulagi 2
2. fundur
Fundur haldinn í Ráðhúsi fimmtudaginn 06. nóvember 2008 kl 13:00
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Haukur Ingi Einarsson
- Starfshópurinn leggur áherslu á að kortagrunnur sveitarfélagsins verði uppfærður þannig að hægt verði að nota hann á sem breiðustum grunni og að sveitarfélagið eigi afnotarétt á grunninum þegar vinnu við endurskoðun á aðalskipulagið verði lokið. Óskað var eftir því að fá starfmenn Náttúrulega og Háskólasetursins á næsta fund og fara yfir þessi mál.
- Einnig var rætt um mikilvægi þess að skilgreina hlutverk mismunandi aðila áður en gengið verði til samninga við ráðgjafa og þeirra sem halda utan um kortagrunn fyrir sveitarfélagið.
- Starfmanni og formanni falið að skýra hlutverk starfshópsins, nefnda, ráðgjafa, almennings, starfsmanna, aðilar með kortagrunn, hagsmunaaðilar og verndaráætlunar þjóðgarðs.
- Halldóra óskaði eftir því að Björn Ingi Jónsson sitji fundi starfshópsins í fjarveru hennar næstu þrjár vikur ef haldinn verður fundur.
Fundi slitið kl: 13:30


