Endurskoðun Aðalskipulags
Fundargerð starfshóps um endurskoðun á Aðalskipulagi 1
1. fundur
Fundur haldinn í Ráðhúsi 31. október 2008 kl 11:30
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Halldóra Bergljót Jónsdóttir, Árni Kjartansson og Haukur Ingi Einarsson
- Rætt um fyrirkomulag vinnu, hlutverk ráðgjafa og hlutverk nefnda. Starfhópurinn taldi mikilvægt að skilgreina vel starf ráðgjafa áður en gengið yrði til samninga við þá. Einng taldi starfshópurinn mikilvægt að gerður verði samningur við ráðgjafa um áframhaldandi vinnu á endurskoðun á aðalskipulagi sem og verk- og tímaáætlun.
- Árni Kjartansson sat umræður undir þessum lið. Minnispunktar frá Glámu Kím voru teknir til umræðu og umfjöllunar. Á.K greindi frá minnisblaði er varðar drög að hlutverkaskiptingu nefnda og ráða varðandi endurskoðun á aðalskipulagi Hornafjarðar. Þar kom fram að fara ætti markvist yfir þá þætti sem þörf er á að endurskoða frá núgildandi aðalskipulagi og hvaða þættir geta staðið eins og þeir standa í dag. Þessa vinnu er æskilegt að fela nefndum til að fá sem virkustu samvinnu heimamanna og ráðgjafa. Undir þetta var tekið af starfshópnum. Jafnframt taldi hópurinn að þungi vinnunnar ætti að fara fram heima fyrir. Rætt var um mikilvægi þess að vinnu við endurskoðun verði haldið vel til haga og verði vel skráð. Einnig var rætt um aðkomu íbúa að vinnunni.
- Starfshópurinn var sammála að vísa minnisblaði frá Glámu – Kím er varðar Erindisbréf fyrir starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi, dagsett 8.10.2008 til umfjöllunar í bæjarráði.
- Starfshópurinn er sammála um að kortagrunnur eigi að vera í eigu sveitarfélagsins og vistarður á einum stað. Starfmanni falið að kanna stöðu kortagrunns sem nú er vistaður hjá Náttúrulega og einnig að kanna hvernig vinna sem Háskólasetrið vinnur að fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er háttað og hvernig upplýsingarflæði er á milli þessara tveggja aðila.
- Stefnt er að því að starfshópurinn fundi í hádeginu 6. nóvember nk.
Fundi slitið kl: 13:00


