Umhverfis- og skipulagsnefnd

Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 44

44. fundur

Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 15. maí 2003, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.

Mættir voru: Ólafur Sigurðsson formaður, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Torfi Friðfinnsson, Magnús Jónasson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:


1. Golfskálinn við Dalbraut og Smárabraut 24. Breytt skráning lóða
Hákon kynnti tillögu um skráningu lóðanna þannig, að lóð Golfskála Hornafjarðar verði skráð Dalbraut 12 í stað V/Dalbraut, og lóð Hvítasunnusafnaðarins verði skráð Hafnarbraut 59 í stað Smárabrautar 24.
Tillagan samþykkt.

2. Skálafell 1, Tveir gistiskálar á lóð C.
Sótt er, í bréfi dags. 23.04.2003, um leyfi til að byggja tvo gistiskála á Lóð C, Skálafelli 1, á reitum nr. 1 og 4, samkv. fyrir-liggjandi tillöguuppdrætti að deiliskipulag svæðisins. Deiliskiplagið hefur ekki verið samþykkt enn, þar sem unnið er í endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Um er að ræða samskonar hús og það sem þegar hefur verið byggt. Teikn. eru gerðar af Reyni Sæmundssyni, arkit. dags. 03.04.2002.
Umsækjandi er Þorsteinn Sigfússon, Skálafelli 1, f.h. Kistugils ehf, kt. 441202-2450.
Erindið er samþykkt þar sem þær samræmast fyrirhuguðum breytingum á endurskoðun á aðalskipulagi.

3. Lindarbakki. Skógrækt.
Sótt er, í bréfi dags. 29.03.2003, um stækkun skógræktarsvæðis á lögbýlinu Lindarbakka, Nesjum. Um er að ræða 197,0 ha. svæði vestur að Hoffellsáraurum, samkv. korti frá Skógrækt ríkisins.
Umsækjandi er Skarphéðinn Larsen.
Afgreiðslu málsins er frestað. Leitað verði eftir umsögn frá Landgræðslu ríkisins, vegna núverandi nýtingu lands og Skipulagsstofnunar, vegna hugsanlegrar tilkynningarskildu sbr. lög nr. 106/2000 þar sem áður er búið að samþykkja um 110 ha svæði á þessari jörð. Einnig telur nefndin að þar sem verið er að vinna í endurskoðun á aðalskipulagi hvort leyfa eigi skógrækt á Skógeyarsvæðinu og skoða verði betur landnýtingu á þessu svæði.

4. Tjaldsvæðið, Hafnarbraut 52 á Höfn. Smáhýsi.
Sótt er, í bréfi dags. 27.04.2003, um leyfi til að reisa allt að 30 smáhýsi fyrir ferðamenn, á tjaldsvæðinu, Hafnarbraut 52, á Höfn. Stærð húsanna er um 15,5 ferm. Fyrirhugað er að byrja með 6 hús til reynslu í 2-3 ár, og meta síðan framhaldið að þeim tíma liðnum.
Umsækjandi er Hugi Einarsson, rekstraraðili þjónunstumiðst.
Samþykkt er að veita leyfið til 3ja ára, en lögð er áhersla á að áður en húsum yrði fjölgað þá væri gert deiliskipulag af svæðinu.
Magnús vék af fundi við afgreiðslu málsins

5. Hagatún 14, Garðhús
Sótt er,í bréfi dags. 14.04.2003, um leyfi til að reisa ca 15 ferm. garðhús úr bjálkaeiningum á lóð nr. 14, við Hagatún, norð-austan við íbúðarhúsið.
Umsækjandi er Elín S. Harðardóttir, Hagatúni 14.
Erindið samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlitsmanns hvað varðar staðsetningu á lóð.

6. Álaugarvegur 7, Líkamsræktarstöð og verslun
Sótt er, í bréfi dags. 12.04.2003, um leyfi ( umsögn ) til reksturs líkamsræktarstöðvar og verslun henni tengdri, að Álaugarvegi 7, Höfn ( í húsi Olíufélagsins ) Með erindinu fylgir heimild eiganda hússins fyrir umsókninni.
Umsækjandi er Birgir Árnason, f.h. Svöfu Mjallar Jónasdóttur, kt. 150485-3479, væntanlegs eiganda hússins.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við starfsemina en bendir á að fullnægjandi teikningar þurfa að berast áður en það er endanlega samþykkt.

7. Kirkjubraut 9. Tillaga um að fella lóðina út sem byggingarlóð.
Tillaga byggingarfulltrúa Hornafjarðar um að byggingar- og skipulagsnefnd mæli með því, að lóð nr. 9, við Kirkjubraut, verði felld út sem byggingarlóð, vegna holræsislagnar í lóðinni og mikils jarðvegsdýpis.
Rætt var um hvort færa ætti byggingarreitinn / lóðin til norð- austurs, ofan af lögninni.
Nefndin er sammála um að vísa því til bæjarráðs að lóðin verði felld út.

8. Hótel Skaftafell. Gistirými á gámabyggingum.
Sótt er, í bréfi dags.06.05.2003. um leyfi til að reisa gistiskála fyrir starfsmenn hótelsins og gesti þess, úr gámaeiningum, norð-austur af núverandi hótelbyggingu í Freysnesi. Um er að ræða samstæðu úr 14 sjálfstæðum einingum, með samfelldu þaki, sem teknar verða á leigu af Hafnarbakka hf, við Sundahöfn í Reykjavík, til 7 ára og verða fjarlægðar, að þeim tíma liðnum. Teikningar af samstæðunni eru gerðar af Tækniþjónustu Sigurðar Þorleifssonar, dags. maí 2003-05-15. Einnig liggur fyrir afstöðumynd af byggingarreit gerð af Ullu R Petersen, landslagsarkitekt, dags. 28.04.2003.
Meðfylgjandi er umsögn Brunamálstofnunar, dags. 14. maí, undirritað af Baldri Friðrikssyni.
Umsækjandi er Anna María Ragnarsdóttir, f.h. Hótels Skaftafells ehf. kt. 650589-1149.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um athugasemdir Brunamálstofnunar sbr. bréf.

9. Kynning nokkurra ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi.
1. :: 11. apríl, 2003. Mælt með endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Veitingahúsið við Jökulsár-lón, fyrir tímabilið 15. maí- 15. sept. 2003. Tilskilið, að húsnæði og aðstaða standist úttekt heilbrigðis- og eldvarnaeftirlits.
Engar athugasemdir
2. :: 4. apríl, 2003. Mælt með endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Flugleiðahótel,í Hótel Eddu, Nesjum, mánuðina júní, júlí og ágúst, 2003. Tilskilið, að húsnæði og aðstaða standist úttekt heilbrigðis- og eldvarnareftirlits.
Engar athugasemdir
3. :: 25. apríl, 2003. Mælt með leyfi til almennra áfengisveitinga í veitingahúsinu Jöklaseli. (Tímamarka ekki getið í umsókn.) Tilskilið, að húsnæði og aðstaða standist úttekt heil-brigðis- og eldvarnareftirlits.
Engar athugasemdir
4. :: 8. apríl, 2003. Heimiluð bygging sólskála við íbúðarhúsið að Hafnarbraut 3, Höfn. Stærð skálans er 8,55ferm.( 2,85x3,00 m.)
Engar athugasemdir
5. :: 8. apríl, 2003. Heimiluð framlenging leyfis til handa Guðveigu Bjarnadóttur, fyrir gisti-aðstöðu í íbúðarhúsinu að Bölta, í Skaftafelli, Öræfum, um eitt ár ( til 31. mars, 2004 ) Skilyrt, að húsnæði og aðstaða standist úttekt heilbrigðis- og eldvarnareftirlits. Áskilið er, að fullnaðarteikningar af húsnæðinu verði lagðar fram, ef um áframhald ofangreinds reksturs verður að ræða að fresti liðnum.
Engar athugasemdir

10. Önnur mál.

Umsókn um leyfi til að reisa húseiningar úr gámaeiningum. Umsækjandi er Sigurbjörn J Karlsson, Smyrlabjörgum, skv. bréfi dags. 15. maí 2003.
Um er að ræða samstæðu úr 6 sjálfstæðum einingum, með samfelldu þaki, sem teknar verða á leigu af Hafnarbakka hf, við Sundahöfn í Reykjavík
Teikningar af samstæðunni eru gerðar af Tækniþjónustu Sigurðar Þorleifssonar, dags. maí 2003.
Óskað er eftir endanlegri afstöðumynd af svæðinu.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um athugasemdir Brunamálstofnunar sbr. bréf ( sjá afgr. í lið 8 )

Umsókn um leyfi til að byggja skyggni við aðal- og þvottahúsinngang að Smárabraut 16, skv. teikningu Vals Sveinssonar, dags. 13. maí 2003
Umsækjandi er Björn Ármannson.
Erindið samþykkt

Umsókn um leyfi til að byggja 4 íbúðir við Víkurbraut 32, Lönguhól, skv. teikningum frá Glámu Kím, dags. 12. maí 2003.
Umsækjandi er Albert Eymundsson f.h. Búmanna.
Engar athugasemdir hafa borist vegna auglýsingar á deiliskipulagstillögu.
Erindið er samþykkt þrátt fyrir að hæð útveggja sé hærri en kveður á um í deiliskipulagsskilmálum, þar sem þakhalli húsanna er 7 gráður en leyfilegur þakhalli er 16 gráður og þ.a.l. breytist heildarhæð húsanna ekkert.

Umsókn um leyfi til að byggja skúrbyggingu við austurgafl Vélsmiðju Hornafjarðar, skv. teikningu frá Helga Má Pálssyni byggingartæknifræðingi dags. maí 2003.
Umsækjandi er Skeggi Ragnarsson
Erindið samþykkt.
Helgi Már vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Erindi frá Trausta Harðarsyni arkitekt þar sem kynntar eru teikningar af endurbyggingu á Sléttaleiti í Suðursveit ( bárust á faxi 14. maí 2003 ).
Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillöguteikningarnar en óskar eftir fullnaðarteikningum.

Hákon lagði fram teikningar af fyrirhugaðri byggingu bensínstöðvar Olís við Hafnarbraut gerðar af Erni Sigurðssyni arkitekt, dags. 14. maí 2003.
Teikningar af húsnæðinu eru samþykktar, en ekki er tekin afstaða til annara mannvirkja á lóðinni þar sem ekki er um endanlegar teikningar að ræða.

Torfi spurðist fyrir um svæði fyrir smærri hús 70 - 90 fermetrar og reglugerð vegna auglýsingaskilta í sveitarfélaginu.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:20

Hákon Valdimarsson
Steinþór Hafsteinsson
Helgi Már Pálsson

Ólafur Sigurðsson
Torfi Friðfinnsson
Magnús Jónasson
Aðalsteinn Aðalsteinsson


Fundargerðir

Dag.grein
22.05.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 45
08.05.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 44
17.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 43
10.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 42
20.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 41
08.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 40
07.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 39
20.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 38
06.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 37
23.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 36
11.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 35
05.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 34
03.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 33
07.11.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 32
31.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 31
03.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 30
12.09.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 29
22.08.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 28
06.06.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 27
11.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 26
09.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 25
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
22.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 23
07.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 22
01.02.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 21
10.01.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 20
06.12.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar  19
02.11.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18
05.10.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 17
07.09.2011 Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar 16
12.08.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 15
01.06.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 14
04.05.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 13
06.04.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 12
14.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 11
02.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 10
18.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 9
02.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 8
12.01.2011 Fundur umhverfis- og skipulagsnefndar 7
12.01.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 7
01.12.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6
03.11.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 5
28.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 4
01.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3
19.08.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 2
23.06.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1
21.04.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 124
24.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 123
10.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 122
10.02.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 120
26.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 119
14.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 118
17.12.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 117
11.11.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 116
14.10.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 115
10.09.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 113
12.08.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 112
10.06.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 111
14.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 110
06.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 109
29.04.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 108
18.03.2009 Fundargerð  byggingar- og skipulagsnefndar 107
25.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 106
11.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 105
04.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 104
14.01.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 103
18.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 102
15.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 101
10.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 100
19.11.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 99
08.10.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 98
25.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 97
24.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 96
10.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 95
13.08.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 94
17.07.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 93
11.06.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 92
14.05.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91
09.04.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 90
27.03.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 89
19.02.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 88
17.01.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 87
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
12.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 85
29.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 84
14.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 83
18.10.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 82
27.09.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 81
08.08.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 80
04.07.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79
27.06.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 78
09.05.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 77
11.04.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 76
14.03.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 75
14.02.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 74
10.01.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 73
13.12.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 72
06.11.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 71
11.10.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 70
13.09.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 69
05.07.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 68
07.06.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 67
18.05.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 66
18.04.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 65
08.02.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 64
09.11.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 63
07.09.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 62
09.06.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 61
12.05.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 60
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
07.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsenfndar 58
10.03.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 57
11.11.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 56
21.10.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 55
22.07.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 54
09.06.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 53
05.04.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 52
11.03.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 51
12.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 50
02.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 49
11.12.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 48
09.10.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 47
01.09.2003 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.07.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 46
12.06.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 45
15.05.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 44
09.04.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 43
13.03.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 42
13.02.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 41
09.01.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.10.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 39
12.08.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 38
14.05.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 37
09.04.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 36
12.02.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 35
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica