Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 37
37. fundur
37. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 6. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Yfirmaður umhverfis- og skipulags.
Dagskrá:
|
201008066 - Sorphirða 2-3 tunnukerfi |
||||
|
||||
|
|
||||
|
2. |
201301125 - Umsókn um leiguspildu Tangi á Ægissíðu |
|||
|
Nefnd gerir ekki athugsemd við umsókn, bendir á að núverandi lóðarhafi þurfi að segja henni upp áður en lóð er úthlutað aftur |
||||
|
|
||||
|
3. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|||
|
Upplýst var að fyrirhugað væri að minnka byggingarmagn og færa þurfi byggingareiti til að lágmarka sjónræn áhrif frá lóni. Björn Ingi telur það afa sérstakt að Vegagerðin skuli geta sett fram hugmyndir að nýju vegstæði og setja þannig í uppnám þá vinnu sem búið er að vinna á undanförnum mánuðum. Fulltrúum Vegagerðarinnar mátti vera það fullljóst að verið væri að vinna nýtt deiliskipulag á svæðinu og nægir þar að nefna ráðstefnu sem haldin var að Hótel Freysnesi á síðasta ári á nokkurs rökstuðning af hverju nauðsynlegt sé að staðsetja nýtt brúarstæði og nýjan veg þar sem þeir gera. En með þessum hugmyndum Vegagerðarinnar er stórlega gengið á eina af helstu náttúruperlum Austur-Skaftafellssýslu.
|
||||
|
|
||||
|
4. |
201302007 - Ný Skipulagsreglugerð 90/2013 |
|||
|
Mál til kynningar |
||||
|
|
||||
|
5. |
200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi |
|||
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að bæjarstjórn auglýsi lýsingu að endurskoðun á aðalskipulagi að nýju vegna reglugerðarbreytingar. |
||||
|
|
||||
|
6. |
201301096 - Umhverfisstefna 2013 |
|||
|
Umræður um stefnu. Mál tekið fyrir síðar. |
||||
|
|
||||
|
7. |
201302019 - Fyrirspurn v. stækkunar á gistiheimili Ránarslóð 3 deiliskipulag |
|||
|
Nefnd tekur jákvætt í málið, óskað er gagna sem sýna skuggavarp og útlit. |
||||
|
|
||||
|
8. |
201301113 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað að Víkurbraut 2 |
|||
|
Nefnd gerir ekki athugasemd við umsókn. |
||||
|
|
||||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.17:30


