Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 34
34. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í ráðhúsi, 5. desember 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir aðalmaður
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Yfirmaður umhverfis- og skipulags.
Dagskrá:
1. 201008066 - 2 tunnukerfi
Farið yfir kosti og galla við upptöku á 2 tunnukefri, Haukur Ingi gerði grein fyrir áætluðum kostnaði við upptöku á kerfi.
Farið yfir stöðu mála og tímaáætlanir. Máli vísað til næsta fundar
Bókað var að Björn Ingi gerir fyrirvara um áhrif á starfsemi áhaldahús og annar aðila sem sorphirða tengist, einnig hafi mátt kynna málið betur.
Ásgrímur gerir athugsemd við athugasemd Björns Inga, þar sem hann telur að ekki hafi verið grundvöllur fyrir því að fara í kynningu þar sem allar upplýsingar hafi ekki legið fyrir.
Haukur Ingi sat fundinn undir þessum lið.
2. 201007027 - Leikvellir á Höfn
Umræða um hugmyndir af breytingum á fyrirkomulagi leikvalla í sveitafélaginu. Mál vísað til frekari vinnslu.
3. 200709055 - Skautasvelli við Hrossabithaga.
Ásgrímur kynnti málið , farið yfir kostnaðar áætlun fyrir lýsingu á skautasvelli. Erindi vísað til bæjarráðs.
4. 201010037 - Refaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði
Lögð fram drög að reglum um refa og minkaveiðar í sveitafélaginu. Máli vísaða til frekari vinnu og verði tekið fyrir á næsta fundi.
Haukur Ingi sat fundinn undir þessum lið.
5. 201211088 - Reglugerð um framkvæmdaleyfi Nr. 772/2012
Kynning á reglugerð um framkvæmdleyfi. Óskað eftir að bæjarráð fari yfir ferla um afgreiðslu framkvæmdaleyfa.
6. 201210052 - Framkvæmdaleyfisumsókn vegna lagningu reiðleiðar
Á síðast fundi var stafsmanni nefndar falið að senda erindið fyrir Umhverfisstofnun og Fornleifavernd, svar hefur borist frá Umhverfisstofnun þar sem stofnuninn gerir ekki athugsemd við málið. Ekki hefur enn borist svar frá Fornleifavernd. Nefnd telur rétt að bíða eftir svari fornleifaverndar.
7. 201211015 - Umsókn um Framkvæmdaleyfi, Grjótnám í landi Stórulágar
Skipulagstofnu legst gegn veitingu framkvæmdaleyfis þar sem náma er ekki á Aðalskipulagi. Erindi hafnað.
8. 201104073 - Umsókn um framkvæmdaleyfi, Göngubrú yfir Hólmsá
Erindi Samþykkt.
9. 201211086 - Starfsleyfi fyrir borun í Hoffelli
Líst er yfir ánægju með heitavatnsleit, Nefnd óskar eftir að í framtíðinni verði farið eftir reglum um framkvæmdaleyfi.
10. 201211054 - Jarðhitaleit í Svínafelli í Öræfum
Nefnd bendir á að farið verði eftir reglum um framkvæmdaleyfi.
11. 201005043 - Göngustígar
Lagt til að í þessum áfang verði lagt bundið slitlag að bryggu Óslandstanga. Máli vísað til tæknideildar.
12. 201211035 - Tilkynning varðandi gildi deiliskipulags sem birt hefur verið í Sjórnartíðindum 2011 og 2012
Máli Vísað til næsta fundar.
13. 201112005 - Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Farið var yfir hugsanlegt skipulagssvæði. Starfsmanni falið að afla gagna. Nefnd óskar eftir að bæjarráð afmarki fé til skipuilagsvinnunar.
14. 201211099 - Deiliskipulag HSSA
Farið var yfir hugsanlegt skipulagssvæði. Starfsmanni falið að afla gagna. Nefnd óskar eftir að bæjarráð afmarki fé til skipuilagsvinnunar.
15. 201211016 - Ósk um breyting á Skipulag, Álaleiru 12-10-8
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindi og leggur til að farið verði í grenndarkynningu,
16. 201112031 - Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli
Borist hafa athugasemdir frá eftirfarandi aðilum: Vegagerðinni, Skipulagsstofnum, Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun.Farið var yfir drög að svörum. Máli vísað til Bæjarstjórna.
17. 1211098 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi samþykkt að uppfyltum skilyrður bygginarfulltrúa og eldvarnaeftirlidts Hornafjarðar.
18. 201211032 - Tilkynning um stöðuleyfi fyrir hjólhýsi og smáhýsi á Skálafelli 1 lóð B
Nefnd bendir á að stöðuleyfi er aðeins veitt til eins árs í einu samkvæmt Bygginarreglugerð 112/2012. 2.6.1. gr.
Stafsmanni falið að svara erindi formlega.
19. 201211062 - Skýrsla náttúruverndarnefnda
Mál tilkynningar.
20. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Hugrún Harpa kynnti að hafin væri vinna að Umhverfisstefnu sveitafélagsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


