Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 31
31. fundur
31. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í ráðhúsi, 31. október 2012 og hófst hann kl.16:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir aðalmaður
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Bryndís Bjarnarson embættismaður
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , Upplýsinga og gæðastjóri.
Dagskrá:
|
200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi |
||
|
Ásgrímur Ingólfsson setti fundinn og fór yfir dagskrá fundarins sem er vinnufundur nefndarinnar. Eitt mál er á dagskrá, endurskoðun á aðalskipulagi fyrir árin 2013-2033. Farið var yfir mál Faxeyrarhafnar, hvort þörf er fyrir höfnina, vandann með grynnslin og hvernig hægt væri að leysa vanda á uppdælingum. Umræður um málið. Ákveðið að fá álit hafnarstjórn á málefni hafnarinnar. Nefndin fór yfir málefni Hornarfjarðarflugvallar, umræður um málefni flugvallarins. Nefndin leggur til að kanna hvort það sé þörf á þverbraut á flugvellinum með tilliti til öryggis og þjónustu við íbúa og flugfarþega. Nefndin fór yfir málefni Vatnajökulsþjóðgars, umræður um umhverfi þjóðgarðsins og sveitirnar í nágreni við hann. Nefndin fór yfir málefni gatnakerfi Hafnar, farið yfir þær breytingar sem eru lagðar til í drögum, Ásgrímur setur athugsemd við vegstæði Faxeyrarhafnar, Björn benti á að ekki þyrfti að rífa saltfiskskemmurnar þó Faxeyrarhöfn væri áfram á skipulagi og vegurinn yrði færður austur fyrir Syðri kletta. Nefndin fór yfir málefni Hornarfjarðarhafnar, Ásgrímur fór yfir tillögu að drögum um málefni hafnarinnar. Nefndin fór yfir vegi sveitarfélagsins, umræður um hvaða veglínur vegagerðin hefur lagt til að verði farin. Sveitirnar, landbúnaður og sóknarfæri farið var yfir gögn um málefni sveitanna, í tengslum við ræktun í samræmi við Skógrækt og Landgræðslu. Umræður um hver eigi að taka ákvörðun um skipulag og landnotkun einstakra jarða. Tillaga um að auglýsa fyrir landeigendum hvernig þeir sjái skipulag á þeirra svæði. Nefndin fór yfir tillögur og gildandi aðalskipulag um landfyllingar á Höfn, umræður um hvernig málin standa í landfyllingum og hvernig nefndin sér fyrir sér hvernig framtíðar landfylling verði á Höfn. Nefndin leggur til að taka út heimlidir fyrir landfyllingu á Sandbakka og Ránarslóð. Nefndinn fór yfir framtíðarskipulag á íbúðarsvæði Hafnar með tilliti til fjölgun íbúa en spá um íbúafjölgun hljóðar upp á 1 % á ári eða um 370 íbúa á skipulagstímanum sem eru 20 ár. Tillaga að nýju aðalskipulagi miðast helst að þéttingu byggðar. Umræður um hvar ný hverfi geta verið í sveitarfélaginu og hvort það sé eðlilegt að byggja í gömlum hverfum og þétta byggð. Nefdin fór yfir alla byggingareiti innan Hafnar og ýmsar umræður urðu um þá reiti sem lagt hefur verið til að skipuleggjasem íbúðar eða þjónustusvæði. Tillaga nefndarinnar er að framtíðar byggingasvæði verði austan Hafnarbrautar á svæðinu sem Gamlabúð stóð áður en hún var færð fyrr á árinu. Ásgrímur fór yfir vinnugögn sem nefndin mun nýta sér í framhaldinu til að senda sem athugasemdir nefndarinnar vegna endurskoðunar á aðalskipulagi á Sigbjörn Kjartansson. Ásgrímur og Rúnar mun fara yfir vinnugögnin og senda punkta á nefndarmenn áður en þeir verða sendir á Sigbjörn.
|
||
|
|
||


