Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 30
30. fundur
30. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinn í ráðhúsi, 3. október 2012 og hófst hann kl.16:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Björgvin Óskar Sigurjónsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Yfirmaður umhverfis- og skipulags.
Dagskrá:
|
201110054 - Gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar |
||
|
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Nefndin samþykkir umrædda gjalsskrá en felur starfsmönnum klára gjaldskránna. |
||
|
|
||
|
2. |
201209005 - Umsókn um breytingu á aðalskipulagi f. sumarhúsasvæði í Stafafellsfjöllum í samræmi við deiliskipulagsbreytingar f. svæðið frá 1999 |
|
|
Ásgrímur kynnti málið fyrir fundarmönnum. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur og setja af stað vinnu við að ljúka málinu. Björn Ingi leggur áherslu að finna út hver verði kostnaður við aðalskipulagsbreytinguna og hver beri þann kostnað. |
||
|
|
||
|
3. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Rúnar sagði frá málinu. Ákveðið var að fresta málinu til næsta fundar vegna þess að það vantaði gögn til að fjalla um málið. |
||
|
|
||
|
4. |
200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi |
|
|
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Umræður skopuðust um málið og nefndin gerir smávægilegar athugasemdir við orðalag og fleira. Ákveðið var að halda sér fund um aðalskipulagið siðar i mánuðinum. Til kynningar. |
||
|
|
||
|
5. |
201209039 - Aðgengi allra að Jökulsárlóni |
|
|
Rúnar kynni málið. Nefndin fagnar skýrslunni. Til kynningar. |
||
|
|
||
|
6. |
201008066 - Sorphirða 2-3 tunnukerfi |
|
|
Ásgrímur kynnti málið fyrir fundarmönnum og sagði þeim frá upplýsingum sem fengust vegna ferðar á Flótsdalshérað og til Fjarðarbyggðar. Töluverðar umræður skopust um málið. Nefndin felur starfsmönnum að halda áfram að vinna i málinu og reikna út kostnað við breytinguna á kerfinu og vera búin að gera kostnaðaráætlun fyrir næsta fund. |
||
|
|
||
|
7. |
201208034 - Tillaga að göngustíg á golfvelli |
|
|
Ásgrímur kynnti málið. Nefndin fagnar tillögunni og mælir med að tekið verði tillit til hennar þegar kemur að þessum hluta göngustígsins. |
||
|
|
||


