Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 29
29. fundur
29. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 12. september 2012 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Friðrik Þór Ingvaldsson 2. varamaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Björgvin Óskar Sigurjónsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Björgvin Óskar Sigurjónsson, Starfsmaður tæknisviðs.
Dagskrá:
1. 201008066 - Umhverfismál - Sorphirða í dreifbýli - þéttbýli
Hugrún og Rúnar kynntu málið. Rúnar sagði fundarmönnum frá kynningu sinni á sorpmálum hjá Fljótdalshéraði og Fjarðarbyggð og væntanlegri kynnisferð fulltrúa sveitarfélagsins þangað 18. september nk. og markmið með henni. Töluverðar umræður sköpuðust um málið.
2. 200906081 - Undanþága frá gassöfnun á urðunarstöðum fyrir úrgang og undanþága vegna endurnýjunar starfsleyfis.
Rúnar kynnti málið. Nefndin bindur vonir við að með aukinni flokkun minnki umfang lífræns úrgangs sem urðaður er. Einnig verður leitað annara leiða til að minnka umfang lífræns úrgangs. Málinu vísað í áframhaldandi vinnu, ákvörðun um hvort áfram skal tekið á móti lífrænum úrgang þarf að liggja fyrir, fyrir 15. febrúar 2013, sbr. bréf frá 20. júní frá umhverfisráðuneytinu.
3. 200903076 - Útivist - Göngustígur
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Umræður sköpuðust um göngustíginn sem nú þegar er kominn og frágang á honum. Friðrik lagði til að lokið verði við að ganga frá núverandi gögnustíg áður en farið verði í nýframkvæmdir á gögnustíg. Nefndin er sammála um að næsti áfangi gögnustígsins verði á Silfurnesinu, við golfvöll.
4. 201112004 - Umhverfismál
Hugrún og Rúnar fylgdu málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um sparnað í götulýsingu og mismunandi útfærslur til að spara lýsinguna. Til kynningar.
Umræður sköpuðust einnig um gróðursetningu við grenndarstöðvar. Nefndin leggur til að prufað verður að gróðursetja kringum þær grenndarstöðvar sem eru mest áberandi. Einnig leggur nefndin til að grenndarstöðvar verði merktar betur.
Unnið verður að umhverfisstefnu samhliða vinnu við aðalskipulag.
5. 201007027 - Leikvellir
Nefndin leggur áherslu á að þau leiktæki sem fjarlægja átti skv. skýrslu heilbrigðiseftirlitsins verði örugglega fjarlægð og að þau leiktæki sem að hægt er að laga verði löguð. Nefndin felur starfsmönnum að skoða hversu marga leikvelli þarf að hafa að lámarki á Höfn og í samræmi við umræður á fundinum og í samræmi við lög og reglugerðir.
Nefndin leggur einnig til að hugað verði að leikvöllum í sveitunum.
Nefndin leggur til að bæjarráð taki frá fjármuni við fjárhagsáætlunargerð fyrir viðhald og nýframkvæmdir á leikvöllum sveitarfélagsins.
6. 201208010 - MÍ 15-22 ára 11.-12. ág. 2012 á Höfn
Nefndin fagnar skýrslunni og nefndin leggur til að hún verði til hliðsjónar við undirbúning Landsmóts 2013 sem verður hér á Höfn.
7. 201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón
Rúnar kynnti málið. Skipulagsstofnun hefur sent inn til sveitarfélagsins athugasemd við deiliskipulagið við Jökulsárlón um að það samræmist ekki aðalskipulagi sveitarfélagsins. Nefndin leggur til að breyta deiliskipulagi í samræmi við aðalskipulag.
8. 201209005 - Umsókn um breytingu á aðalskipulagi f. sumarhúsasvæði í Stafafellsfjöllum í samræmi við deiliskipulagsbreytingar f. svæðið frá 1999
Rúnar kynnti málið. Skipulagsstofnun hefur sent inn til sveitarfélagsins athugasemd við deiliskipulagið í Stafafellsfjörllum um að það samræmist ekki aðalskipulagi sveitarfélagsins. Frestað til næsta fundar.
9. 201110054 - Gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Nefndin ætlar að kynna sér málið betur og frestar málinu til næsta fundar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45


