Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 27
27. fundur
27. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 6. júní 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir aðalmaður
Lars Jóhann Andrésson 1. varamaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
200706082 - Umferðarmerkingar á Höfn.( Lögreglan ) |
|
|
Jón Garðar Bjarnason kom inn á fundinn undir þessum lið. Fór hann yfir punkta sem komu fram í samantekt frá Lögreglunni á Höfn. Nefndin óskar eftir því að fá senda samantektina í tölvupósti. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að byrjað verði á því að lagfæra rangar merkingar og snjáð merki. Nefndin leggur einnig til að merkingar við Tjarnarbúr og Svalbarð verði full gerðar. Einnig leggur nefndin til að gangbraut meðfram Brautarholti verði breikkuð. Starfsmönnum falið að gera tillögu að frekar forgangsröðun merkinga |
| |
|
|
| 2. |
200706082 - Umferðarmerkingar á Höfn.( hafnarsvæði) |
|
|
Rætt var um umferðaröryggi inni á hafnarsvæði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að Hafnarsvæðið verð vel merkt með merkingum. Einnig verði afmörkuð akstursleið fram með Miklagarði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gata milli hafnarvogar og Pakkhússins verði gerð að einstefnugötu og vísar því máli til umræðu í Hafnarstjórn. Nefndin bendir á að umræður voru uppi um að gera einstefnuna frá Norðri verði það mögulegt út frá hagsmunum vogarinnar. |
| |
|
|
| 3. |
201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum - seinni umræða |
|
|
Rúnar fylgdi máli úr hlaði, gerði hann grein fyrir því að fjalla þarf aftur um málið vegna formgalla í bókun nefndarinnar frá því málið var síðast tekið fyrir. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar skipulaginu til síðari umræðu í bæjarstjórn. |
| |
|
|
| 4. |
200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi Lýsing og matslýsing. |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar lýsingunni og matslýsingunni til umsagnar þar til gerðra aðila. |
| |
|
|
| 5. |
201111041 - Svar bréf Fosshótela ehf til nefndar. á Hafnarvík/Heppu svæði |
|
|
Ásgrímur fór yfir bréf Fosshótela. Lagði hann til að formaður, Björn Ingi og starfsmenn ræði við Fosshótel um áframhald málsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar framkomnu erindi og samþykkir framlagða tillögu.
|
| |
|
|
| 6. |
201004019 - Vegaslóði vegna atvinnuupbyggingar við Fláajökul |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir veglagningunni að því gefnu að samþykki Skipulagsstofnunnar liggi fyrir. Nefndin hvetur til þess að hugað verði að uppbyggingu salernis fyrir svæðið með vaxandi umferð ferðamanna. |
| |
|
|
| 7. |
201205002 - Umsókn um Framkvæmdaleyfi ( efnistaka í landi Efri- Fjarðar) |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir efnistökuna fyrir sitt leiti og vísar málinu til bæjarráðs. |
| |
|
|
| 8. |
201203014 - Umhverfisviðurkenning |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að auglýst verði eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga. Óskað verði eftir tilnefningum í þrjá flokka, Fyrirtæki/stofnanir, Einstaklingar og Lögbýli. Starfsmönnum falið að auglýsa eftir tilnefningum. Afhending viðurkenningar fari fram á Humarhátíð. Tilnefningar berist fyrir 20. júní. |
| |
|
|
| 9. |
201110054 - Gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar |
|
|
Nefndin óskar eftir samanburði á gjaldskrám fyrir næsta fund og hvernig þessi nýja gjaldsskrá er frábrugðin þeirri sem nú er í gildi. |
| |
|
|
| 10. |
201008066 - Endurskoðun sorphirðu |
|
|
Málinu frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 11. |
1205067 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging. |
|
|
Lögð fram ósk um leyfi fyrir byggingu á bílskúr að Vogarbraut 4, umsækjendur eru Ásgeir Ingi Óskarsson og Jóhanna Sigurbjörnsdóttir. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við byggingu bílskúrsins að því gefnu að nágrannar að Vogabraut 6 séu því samþykkir. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að fylgja málinu eftir. |
| |
|
|
| 12. |
201205066 - Umsókn um lóð og grunn Gömlubúðar |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því að svæðið verði skipulagt áður en lóðinni verður úthlutað. Erindinu því hafnað. Umhverfis- og Skipulagsnefnd mælir með því að grunnurinn verði ekki rifin að svo komnu máli en gerður þannig að hann verði ekki hættulegur gestum og gangandi. |
| |
|
|
| 13. |
201205065 - Ágangur villtra dýra og fugla á ræktunarlönd bænda á Hornafirði |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir samantektina. Nefndin telur mikilvægt samantektin verði send til landbúnaðar- og umhverfisráðuneytisins til umsagnar. Starfsmönnum falið að ræða við ráðuneytin um leiðir til úrbóta. |
| |
|
|
| 14. |
201203054 - Kröfubréf vegna leiktækja á opum leiksvæðum í sveitarfélaginu |
|
|
Nefndin þakkar fyrir bréfið og felur starfsmönnum að bæta úr þeim hættum sem fram koma í bréfinu. Nefndin bendir á að til skoðunar er að fækka leikvöllum og verður það skoðað í tengslum við erindi HAUST. |
| |
|
|
| 15. |
201204003 - Ályktanir frá Kvenfélaginu Ósk |
|
|
Nefndin tekur undir sjónarmið sem fram koma í ályktunum frá Kvennfélaginu Ósk. Varðandi fjarskiptarmál bendir nefndin á að verið sé að leita leiða til úrbóta í þeim málum. Varðandi samgöngur þá telur nefndin mikilvægt að Vegagerðin leggi veg í samræmi við samþykkt aðalskipulag Sveitarfélagsins sem fyrst og óskar eftir því að bókun þessi ásamt ályktunum frá Kvennfélaginu Ósk verði send til Innanríkisráðuneytisins. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00