Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 21
21. fundur
21. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 1. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Aðalsteinn Aðalsteinsson 3. varamaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201111015 - Vatnaáætlun 2011-2015 |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir áætluninni. Sagði hann að beðið væri eftir fyrsta samráðsfundi um áætlunina sem verður haldin 7. febrúar n.k . Rætt var um möguleika á samstarfi við Vestur - Skaftafellssýslu. |
| |
|
|
| 2. |
200804098 - Vatnajökulsþjóðgarður - staða þjóðgarðsins og verkefni á sviði náttúruverndar |
|
|
Rúnar kynnti málið. Rætt var um samstarf þjóðgarðs og Sveitarfélagsins á sviðið skipulagsmála. Talað var um að næsti fundur stjórnar þjóðgarðsins verði um samgöngur innan hans. |
| |
|
|
| 3. |
201001024 - Kvörtun vegna sandfoks á Leirusvæði |
|
|
Lagt fram erindi frá íbúum á Fákaleiru.
Erindið:
Óskað er eftir að húsbyggjendum á Leirusvæðpi verði sett þau skilyrði að ganga frá lóðum og öðrumopnum sárum eins fljótt og kostur er ( sérstaklega að ekki séu opin sár yfir veturinn ) til að fyrirbyggja fok yfir þá íbúðarbyggð sem fyrir er. Jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að fylgja málinu fast eftir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að lóðarhafar sem huga að byggingu á Leirusvæði verði hvattir til að ganga frá lóðum eins fljótt og kostur er. Einnig bendir nefndin á 4. gr. í reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða. |
| |
|
|
| 4. |
201201062 - Óleyfisframkvæmdir á lóð - ákvörðun dagsekta |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að í framtíðinni verði það á valdi bæjarráðs að ákveða dagsektir. |
| |
|
|
| 5. |
201201059 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis (gisting fl. II) fyrir Bakka |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir samskiptum við lögfræðing Skipulagsstofnunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu og bendi á að ekki er heimilt samkvæmt gildandi aðalskipulagi fyrir svæðið að reka gistiheimili í flokki II. Bendir nefndin umsækjendum á að hægt er að reka heimagistingu í húsinu sem lúta að reglum HAUST. |
| |
|
|
| 6. |
200706082 - Umferðaröryggi-hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. |
|
|
Kom fram að samhliða framkvæmdum við endurbætur á fráveitu frá tjaldsvæði komi til greina að byggja upp hraðatakmarkandi aðgerð í samræmi við skýrslu unna af Mannvit frá 2008. Bendir nefndin á að unnið hafi verið að forgangröðun í samræmi við skýrsluna. Búið er að byggja upp hraðatakmarkandi aðgerðir við íþróttasvæði og gönguleiðir að skólum. Nefndin er sammála um að leggja næst áherslu á að byggja upp hraðatakmarkandi aðgerð við Brautarholtið í samræmi við skýrsluna. |
| |
|
|
| 7. |
201112051 - Beiðni um stofnun nýrrar lóðar út úr Hólmi |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Nefndin gerir ekki athugasemd við landskiptin. Málinu vísað í lögformlegt ferli. |
| |
|
|
| 8. |
201010037 - Refaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundinum og lagði fram minnisblað frá 31.01.2012. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að vinna að málinu áfram og leggja fyrir næsta fund. Gera drög að reglum út frá minnsiblaðinu. Taka saman gögn um fjölda ráðinna veiðimanna, svæðin sem þeir vinna á, hvað hver og einn veiðimaður hefur skilað inn undanfarin ár, heildartölur veiddra refa og minka frá UST á okkar svæði o.fl sambærilega þætti. |
| |
|
|
| 9. |
201201024 - Beiðni um leyfi til landskipta á Lindarbakka |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Nefndin gerir ekki athugasemd við landskiptin. Málinu vísað í lögformlegt ferli. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30