Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 20
20. fundur
20. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 10. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201112032 - Breyting á deiliskipulagi Knatthús Höfn |
|
|
Ásgrímur las upp eftirfarandi bókun og vék síðan af fundi undir þessum lið.
Eftir samtal við lögfræðing Sambands Íslenskra Sveitafélaga og til að tryggja að umræða um íþróttahús og breytingar á deiliskipulag verði samgjörn og hlutdrægi nefndarinnar verði ekki dregin í efa hef ég ákveðið að kalla inn vara mann í afgreiðslu þessa máls.
Jafnframt eftir umrætt samtal við lögfræðing Sambands Íslenskra Sveitafélaga hef ég þó komist að því að ég get ekki talist vanhæfur til að taka þátt í afgreiðslum á máli sem getur á engan þátt talist vera úthlutum á gæðum eða hlunnindum handa viðkomandi fyrirtæki og er í raun rökrétt framhald á ákvörðun sem þegar hefur verið tekin.
Sigurlaug kom inn á fundinn í síma undir þessum lið.
Haukur Ingi gerði grein fyrir breytingatillögunni og fór yfir þær breytingar sem fram koma á uppdrætti með greinargerð unnið af Glámu Kím arkitektum dagsettum í janúar 2012. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytingatillöguna og vísar henni til umfjöllunar í bæjarstjórn. |
| |
|
|
| 2. |
201005046 - Lýsing - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Umhverfis- og skipulagnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við lög. Nefndin leggur áherslu á að deiliskipulagið verði tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar og vísað til bæjarstórnar. |
| |
|
|
| 3. |
201112031 - Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli |
|
|
Lagt fram deiliskipulag og greinargerð af þjónustusvæði í Skaftafelli í samræmi við uppdrátt dags. 30.06.2010 unnin af Gláma Kím. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagt skipulag og leggur til að bæjarstjórn taki málið til meðferðar. |
| |
|
|
| 4. |
201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum |
|
|
Lagðar fram athugasemdir við deiliskipulag í Stafellsfjöllum. Nefndin felur starfmönnum um að senda athugasemdir til landeigenda og óska eftir svörum við þeim fyrir næsta fund nefndarinnar. Einnig að starsmenn greini þær athugasemdir sem snúa að nefndinni og geri drög að svörum við athugasemdum fyrir næsta fund. |
| |
|
|
| 5. |
201201013 - Beiðni landverndar um aðstoð við kosrtlangningu smábátahafna og baðstranda vegna Bláfánans |
|
|
Rúnar kynnti málið. Nefndin er sammála um fylgjast með málinu. Því vísað til Hafnarstjórnar. |
| |
|
|
| 6. |
1201015 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir uppsetningu klæðningar á Álaugareyjarveg 19, umsækjandi er f.h eigenda Björgvin Ó. Sigurjónsson |
|
|
Rúnar lagði fram byggingarleyfisumsókn um uppsetningu á klæðningu á Álaugareyjarveg 19 í samræmi við gögn unnum af Verkfræðiþjónustunni ehf. dags. 06.01.2012. Nefndin samþykkir framlagða byggingarleyfisumsókn að því gefnu að fullnaðargögn verði skilað inn og að endanlegt samþykki eldvarnareftirlits liggi fyrir. |
| |
|
|
| 7. |
1201014 - Umsókn um byggingarleyfi, Álaugavegi 9. Umsækjandi er f.h Björgvin Ó. Sigurjónsson |
|
|
Rúnar lagði fram byggingarleyfisumsókn um bætta aðstöðu við Álaugarveg 9 í samræmi við gögn unnum af Verkfræðiþjónustunni ehf. Nefndin samþykkir framlagða byggingarleyfisumsókn að því gefnu að fullnaðargögn verði skilað inn og að endanlegt samþykki eldvarnareftirlits liggi fyrir. |
| |
|
|
| 8. |
200709059 - Tillaga að flutningi Þjóðvegur 99 |
|
|
Nefndin þakka fyrir góðar undirtektir frá Vegagerðinni og felur starfsmönnum að eiga samstarf við Vegagerðina um nánari hönnun og útfærslu á framkvæmdinni. |
| |
|
|
| 9. |
201110075 - Ferill dagssekta |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Gerðar voru smávægilegar breytingatillögur og málinu vísað til bæjarráðs. |
| |
|
|
| 10. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Nefndin leggur til að í framtíðinni berist fundargögn til nefndarmanna fyrr en deginum áður. Fundarmenn þurfa tíma til að kynna sér fundargögn og því mikilvægt að viðamikil gögn berist um leið og ljóst er að þau verði lög fyrir nefndin. Einnig að formaður og starfsmenn nefndarinnar ákveði fyrir fund hvaða gögn ber að senda útprentuð og hvaða gögn skuli senda í tölvupósti.
Umræða skapaðist um hlutverk byggingarstjóra á verkum, nefndin beinir þeim tilmælum til allra þeirra sem huga á framkvæmdir sem háðar eru samþykkir og yfirferð byggingarfulltrúa að fara að lögum og reglum í þeim efnum. Samþykkt að taka málið fyrir á næsta fundi. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40