Umhverfis- og skipulagsnefnd

Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar  19

19. fundur

19. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, 6. desember 2011  og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu:

Ásgrímur Ingólfsson formaður

Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður

Björn Ingi Jónsson aðalmaður

Aðalsteinn Aðalsteinsson 3. varamaður

Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs

Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs

Fundargerð ritaði:  Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.

 Dagskrá:

 

1. 200709059 - Breyting á Þjóðvegi 99. Höfn.
Rúnar, Björn Ingi og Ásgrímur gerðu grein fyrir málinu. Fram kom að tillaga að nýju vegstæði fyrir þjóðveg í þéttbýli liggi í samræmi við tengiveg sem sýndur er á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Rætt var um mikilvægi þess að gæta að greiðfærni inn í miðbæ á Höfn. Starfsmönnum falið að senda erindið á Vegagerðina og óska eftir samstarfi um næstu skref.
 
2. 201112003 - Sorpdagatal 2012
Lögð fram drög að sorpdagatali fyrir árið 2012. Starfsmönnum falið að klára uppsetningu á dagatalinu og gefa út fyrir árið 2012. Samþykkt að starfsmenn undirbúi fund þar sem tekið verði á dagsskrá umhverfismál og sérstaklega tveggja tunnu kerfi.
 
3. 201112004 - Umhverfisstefna sveitarfélagsins
Rætt var um gerð umhverfisstefnu og ýmsar útfærslur á gerð hennar. Starfsmönnum falið að vinna tillögur að vinnufyrirkomulagi og senda drög að umhverfisstefnu á nefndarmenn.
 
4. 201112005 - Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Ásgrímur ræddi hugmyndir að deiliskipulagi á Holt á Mýrum, lagt fram yfirlit yfir landamerki við Holt og Kiljuholt á Mýrum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu, undirbúa gögn í formi loftmynda og lýsingar og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
 
5. 1111049 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Leikskólann Krakkakot
Stefán Ólafsson sækir um f.h Sveitarfélagið Hornafjörð um að byggja við Leikskólann Krakkakot eina deild samkvæmt meðfylgjandi teikningum frá KRark, Ármúla 1 Reykjavík dags. 10.10.2011. Fram kom að umsóknin er í samræmi við skipulag svæðisins.

Meirihluti nefndarinnar samþykkir framlagða ósk um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við leikskólann Krakkakot að því gefnu að fullnaðargögn í berist byggingarfulltrúa.

Björn Ingi var á móti þessari uppbyggingu á grundvelli barnafjölgunar og þeirrar aðstöðu sem er í samfélaginu og telur að ekki sé þörf á viðbyggingunni í ljósi íbúaþróunar. Telur hann að þeim fjármunum sem veitt verður í verkið ætti að nýta til betri og þarfari verka og getur því ekki samþykkt framlagða byggingarleyfisumsókn.
 
6. 1112006 - Umsókn um byggingarleyfi
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Sótt er um leyfi fyrir byggingu klæðingar og gluggaskipta á Norðurbraut 4, umsækjandi er Sigurður Karlsson og Birna Sigurðardóttir. Nefndin gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi ljúki málinu.
 
7. 201111041 - Beiðni um viðræður um hugsanlega aðkomu Fosshótela og tengdra félaga að uppbyggingu á Hafnarvík/Heppu svæði
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og hvernig umsóknin um lóðirnar væru til komnar. Sagði hann frá áhuga og þeim fundum sem starfsmenn og formaður bæjarráðs hafa átt með forsvarsmönnum Fosshótela um að koma að uppbyggingu ferðaþjónustu í samræmi við deiliskipulagið sem umhverfis- og skipulagsnefnd hefur unnið að síðustu mánuði og er nú í meðferð bæjarstórnar. Taldi hann að nefndin hafi undirbúið málið vel og kom meðal annars fram í máli arkitekta Argos að skipulagið væri til þess fallið að laða að sér fjárfestingu og skapa heillega byggðamynd á Heppunni að nýju. Haukur taldi að umsóknin staðfesti að deiliskipulagið hafi verið vel heppnað hjá nefndinni og að umsókn um slíka fjárfestingu beri þess merki þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu Miklagarðs í sinni upprunalegu mynd, byggingu Bíóbraggans, Verðandi ,Vindheima og nýbyggingarreita B1 og B2. Mikilvægt er að áætlanir fjárfesta eru í samræmi við deiliskipulagið sem bíður samþykkis. Slík fjárfesting sé líkleg til að styrkja áframhaldandi þróun byggðar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Um yrði að ræða verkefni upp á hundruð milljóna króna á framkvæmdatímanum ef til kæmi. Fjárfestingin sem eftir stæði væri líkleg til að styrkja atvinnu- og byggðaþróun á Höfn til langs tíma. Nefndin bendir umsækjanda á að kynna sér úthlutunarreglur sveitarfélagsins og skila inn þeim gögnum sem til er ætlast í reglunum. Starfsmönnum falið að koma upplýsingum um reglurnar til umsækjenda. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar framkomnu erindi og sér ekki annmarka að því að lóðunum verði úthlutað að því gefnu að deiliskipulagið verði samþykkt og að umsækjandi uppfylli úthlutunarreglur sveitarfélagsins. Málinu vísað til bæjarráðs.

Björn Ingi leggur áherslu á að hugað verði að skapandi greinum og menningartengdri ferðaþjónustu í uppbyggingu svæðisins.
 
8. 201002048 - Jarðvegsframkvæmdir - Leirusvæði
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu og þeim úrræðum sem þegar hefur verið gripið til vegna foks á Leirusvæðinu. Starfsmenn Áhaldahúss vinna nú að því að vökva svæðið til að hefta fok, einnig hafa starfsmenn kynnt sér úrræði Landgræðslunnar um að notast við bikblöndu til að binda jarðveg og hefta þannig fok. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að unnið verði að úrræðum til að draga úr foki eins og kostur er.
 
9. 201102011 - Önnur mál
Haukur Ingi gerði grein fyrir umsóknum og úthlutun beitar og slægjulanda.

Gunnar Páll vakti máls á að öryggisgrindverk við Hafnarbarut/Essó hól væri ábótavant og þarfnaðist lagfæringar.

Rætt var um mikilvægi þess að hafa veginn um Almannaskarð opinn, hann sé nauðsynlegur öryggisþáttur eins og nýlegt dæmi sannar þegar slökkvilið Hornafjarðar fór í útkall í Almannaskarðsgöngunum vegna umferðaróhapps. Fram kom að vegurinn upp Almannaskarðið geti bjargað mannslífum. Nefndin óskar eftir því að bæjarráð beiti sér í að tryggja það að Alamannaskarðið verði ávallt opið.
 

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 18:00


Fundargerðir

Dag.grein
22.05.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 45
08.05.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 44
17.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 43
10.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 42
20.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 41
08.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 40
07.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 39
20.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 38
06.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 37
23.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 36
11.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 35
05.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 34
03.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 33
07.11.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 32
31.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 31
03.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 30
12.09.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 29
22.08.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 28
06.06.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 27
11.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 26
09.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 25
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
22.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 23
07.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 22
01.02.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 21
10.01.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 20
06.12.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar  19
02.11.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18
05.10.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 17
07.09.2011 Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar 16
12.08.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 15
01.06.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 14
04.05.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 13
06.04.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 12
14.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 11
02.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 10
18.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 9
02.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 8
12.01.2011 Fundur umhverfis- og skipulagsnefndar 7
12.01.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 7
01.12.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6
03.11.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 5
28.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 4
01.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3
19.08.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 2
23.06.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1
21.04.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 124
24.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 123
10.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 122
10.02.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 120
26.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 119
14.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 118
17.12.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 117
11.11.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 116
14.10.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 115
10.09.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 113
12.08.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 112
10.06.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 111
14.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 110
06.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 109
29.04.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 108
18.03.2009 Fundargerð  byggingar- og skipulagsnefndar 107
25.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 106
11.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 105
04.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 104
14.01.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 103
18.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 102
15.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 101
10.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 100
19.11.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 99
08.10.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 98
25.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 97
24.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 96
10.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 95
13.08.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 94
17.07.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 93
11.06.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 92
14.05.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91
09.04.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 90
27.03.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 89
19.02.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 88
17.01.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 87
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
12.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 85
29.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 84
14.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 83
18.10.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 82
27.09.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 81
08.08.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 80
04.07.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79
27.06.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 78
09.05.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 77
11.04.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 76
14.03.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 75
14.02.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 74
10.01.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 73
13.12.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 72
06.11.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 71
11.10.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 70
13.09.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 69
05.07.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 68
07.06.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 67
18.05.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 66
18.04.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 65
08.02.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 64
09.11.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 63
07.09.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 62
09.06.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 61
12.05.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 60
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
07.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsenfndar 58
10.03.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 57
11.11.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 56
21.10.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 55
22.07.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 54
09.06.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 53
05.04.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 52
11.03.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 51
12.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 50
02.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 49
11.12.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 48
09.10.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 47
01.09.2003 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.07.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 46
12.06.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 45
15.05.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 44
09.04.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 43
13.03.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 42
13.02.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 41
09.01.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.10.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 39
12.08.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 38
14.05.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 37
09.04.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 36
12.02.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 35
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica