| 1. |
200706082 - Umferðaröryggi-hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. |
|
|
Undir þessum lið komu Anna María Ríkharðsdóttir, Linda Hermannsdóttir og Ragna Einarsdóttir og ræddu um aukið umferðaröryggi innan Hafnar, lögðu þær til að gangbrautir verði málaðar oftar, skoðað verði með umferðaröryggi við Brautarholtið og gerð verði forgangsröðun úrbóta byggða á skýrslu frá Mannvit frá 2008. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkaði Slysavarnadeildarinnar Framtíð fyrir hraðahindrun sem sett var á Víkurbraut. Samþykkt að taka málið aftur á dagskrá snemma á næsta ári. |
| |
|
|
| 2. |
200805074 - Hafnarvík Heppa Deiliskipulag |
|
|
Kom fram að athugasemdafrestur er liðinn. Tvær ábendingar bárust og voru þær lagðar fram. Ein frá Rarik dags. 8 september og önnur frá Sláturfélaginu Búa Svf. dags 3.október. Drög að svörum lagt fyrir fundinn. Gerðar voru smávægilegar orðalagsbreytingar á svörunum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vísa drögum að svörunum til bæjarráðs. |
| |
|
|
| 3. |
201106027 - Bréf LES lögmannsstofu frá Landeigendum í Nesjum um leiðir vegna lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
201109009 - Drög að reglum um girðingar við göngustíga og opin svæði |
|
|
Lögð fram drög að reglum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlögð drög að reglum með orðalagsbreytingum. Vísað til bæjarráðs. |
| |
|
|
| 5. |
1110046 - Umsókn um byggingarleyfi f. frístundahús á lóð nr. 6 við Freysmörk |
|
|
Sótt er um leyfi fyrir byggingu frístundahúss á lóð nr. 6 við Freysmörk í Öræfum í samræmi við framlögð gögn. Umsækjandi er Anna María Ragnarsdóttir. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagði umsókn um byggingarleyfi með fyrirvara um fullnægjandi gögn samkvæmt byggingarreglugerð. |
| |
|
|
| 6. |
1110065 - Umsókn um byggingarleyfi - breyting á þaki |
|
|
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á þaki bílskúrs á Vogabraut 1. Umsækjandi er Stefán B. Jónsson. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagði umsókn um byggingarleyfi með fyrirvara um fullnægjandi gögn samkvæmt byggingarreglugerð. |
| |
|
|
| 7. |
1110057 - Umsókn um byggingarleyfi - breytingu á skráningu í atvinnuhúsnæði |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Óskað er eftir frekari gögnum um málið áður en til afgreiðslu þess kemur. |
| |
|
|
| 8. |
1110037 - Umsókn um byggingarleyfi Heppuskóli |
|
|
Sótt er um leyfi fyrir breytingum innandyra í Heppuskóla í samræmi við gögn unnum af ASK arkitektum verknúmer 1052. Umsækjandi er Stefán Ólafsson f. h Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsókn um bygginarleyfi með fyrirvara um fullnægjandi gögn samkvæmt byggingarreglugerð. |
| |
|
|
| 9. |
201110030 - Ósk um vegvísi að frístundahúsi(Steinaborg) í landi Skálafells í Suðursveit |
|
|
Nefndin gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skiltisins. |
| |
|
|
| 10. |
1110071 - Umsókn um lóð, Álaleira 13 og 15 |
|
|
Sótt er um lóð við Álaleiru 13 og 15. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í umsóknina og leggur til að farið verði í grenndarkynningu berist fullnaðargögn samkvæmt byggingarreglugerð. |
| |
|
|
| 11. |
1110072 - Umsókn um byggingarleyfi |
|
|
Sótt er um leyfi til að klæða hús að Hlíðartúni 15 í samræmi við framlögð gögn. Umsækjandi er Guðmundur Hafliði Guðmundsson. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagði umsókn um byggingarleyfi með fyrirvara um að fullnægjandi gögn berist samkvæmt byggingarreglugerð. |
| |
|
|
| 12. |
1110073 - Umsókn um byggingarleyfi |
|
|
Sótt er um leyfi til að breyta þaki og gluggum í samræmi við framlögð gögn. Umsækjandi er Bjarni S. Bjarnason. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsókn um bygginarleyfi með fyrirvara um samþykki eiganda Fiskhóls 5. |
| |
|
|
| 13. |
201110074 - Girðing með Þjóðvegi |
|
|
Lögð fram drög að erindi til Vegagerðarinnar um áframhaldandi samstarf á friðun vegsvæðis á þjóðvegi 1 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að óska eftir áframhaldandi samstarfi. Starfsmönnum falið að senda erindið á Vegagerðina. |
| |
|
|
| 14. |
201111002 - Afnot af slægju og beitilandi |
|
|
Lagt fram yfirlit aðila sem eru með afnot af slægju- og beitilöndum. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að gildandi samningar verði framlengdir en að gjald fyrir afnot af landi hækki þannig að hver h.a á beitilandi verði 4.500.- kr og hver h.a af slægjulandi verði 7.500.-kr. Nefndin felur starfsmönnum einnig að auglýsa ónotuð slægju- og beitilönd laus til umsóknar. |
| |
|
|
| 15. |
201110054 - Gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar |
|
|
Farið var yfir gjaldsskrár sem heyra undir nefndina. Gerð er tillaga um að hækka gjöld vegna beiti- og slægjulanda s.b.r síðasta lið og einnig að gjöld á sorphreinsun þannig að gjöld vegna sorphreinunar hækki úr 10.000.- kr í 11.500.- Fram kom að kostnaður vegna sorphreinsunar er áætlaður 24 m.kr fyrir árið 2012 en að tekjur vegna sorphreinsunar eru áætlaðar 8.2 m.kr. Sveitarfélagið greiði því um 16 m.kr með þessum lið á hverju fjárhagsári. Nefndin leggur til að bætt verði við einum timbur-og brotajárnsgám í sveitirnar m.a til að tryggja sömu þjónustu í Öræfum og öðrum sveitum. Áætlaður kostnaður er 500 þ.kr. Björn Ingi telur að það þurfi meiri yfirsýn um viðbótar gám til sveita áður en ákvörðun er tekin. Byggingarfulltrúa falið að vinna tillögur að gjaldskrá embættisins. |
| |
|
|
| 16. |
201010037 - Refaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir mismunandi sjónarmiðum í refaveiðum. Lagði hann til að boðað verði til fundar um málefni refa- og minkaveiða þar sem farið verði almennt yfir refaveiðar í sýslunni. Fundurinn fari fram í janúar á næsta ári og verði haldinn í Holti á Mýrum. |
| |
|
|
| 17. |
201110061 - Drög að áætlun um uppbyggingu fráveitu |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir áætluninni. Lagði hann til að áætlunin verði samþykkt og kostnaðarmetin. Hún síðan send til HAUST. Einnig lagði hann til að farið verði í vinnu við að skilgreina viðtaka. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 18. |
201110075 - Ferill dagssekta |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir ferli dagssekta. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 19. |
201110051 - Ósk Umhverfisstofnunar um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í vatnasvæðanefnd |
|
|
Lagt er til að Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson verði tilnefndur fulltrúi sveitarfélagsins í vatnasvæðanefnd. |
| |
|
|
| 20. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Rætt var um þjóðveg í þéttbýli. Samþykkt að Gunnlaugur Rúnar, Ásgrímu Ingólfsson og Björn Ingi Jónsson fylgi málinu eftir og gerir tillögu um staðsetningu veglínunnar.
Ásgrímur spurði hvort starfsmenn væru búnir að gera áætlun um að hefta fok á Leirusvæði ef til þess kemur. Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim úrræðum sem brugðið verður við komi til þess að fjúki úr uppdælingarsvæðinu. |
| |
|
|
| 21. |
201110032 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu á skilti á íþróttahúsi |
|
|
Lögð fram umsókn um leyfi til að setja upp skilti á íþróttahúsinu á Höfn, umsækjandi er Kristján Guðnason formaður knattspyrnudeildarinnar Sindra. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skilta á íþróttahúsinu á Höfn en setur það sem skilyrði að skiltin verði með myndir af landslagi úr Sveitarfélaginu Hornafirði í bakgrunn, leyfið verði veitt tímabundið. Björn Ingi hafði efasemdir um að hlið sem snýr að Hafnarbraut ætti að bera skilti út frá umferðaröryggi. Benti hann einnig á að taka þarf til og afmá þær auglýsingarnar á gamla vatnstank sem ekki er verið að innheimta styrki fyrir. Málinu vísað til bæjarráðs. |
| |
|
|