Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 14
14. fundur
14. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar
haldinní ráðhúsi,1. júní 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður
Lars Jóhann Andrésson 1. varamaður
Steinþór Hafsteinsson starfsmaður tæknisviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Björgvin Óskar Sigurjónsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Björgvin Óskar Sigurjónsson, Starfsmaður tæknideildar.
Dagskrá:
| 1. |
1105044 - Umsókn um byggingarleyfi f. frístundahús Svínafelli 3 |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði og kynnti framkvæmdina. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu frístundarhúsi að því gefnu að fullnaðargögn berist. |
| |
|
|
| 2. |
1105043 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskýli við Svalbarð 4 |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipilagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu bílskýlis að því gefnu að fullnaðargögn berist og bendir á að hugað verði að eldvörnum þar sem byggingin er byggð upp við núverandi hús. |
| |
|
|
| 3. |
201105042 - Umsókn um leyfi til að breyta gluggum að Bogaslóð 10 |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði og kynnti framkvæmdina. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir breytingu á gluggum í upprunarlegt útlit. Nefndin bendir á að hugað verði að eldvörnum varðandi björgunarop o.s.frv. |
| |
|
|
| 4. |
201105045 - Uppsetning biðskylduskilta |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Nefndin fól starfsmönnum að finna staðsetningu á biðskildumerki í samræmi við lög og reglur. |
| |
|
|
| 5. |
201105024 - Ósk um leyfi til niðurrifs húsa að Hnappavöllum I |
|
|
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Nefndin er sammála um að fá umögn Húsafriðunarnefndar og Fornleifastofnunar áður en málið verður afgreitt. |
| |
|
|
| 6. |
201105004 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað I að Kirkjubraut 5 á Höfn - visað frá bæjarráði |
|
|
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Nefndin setur sig ekki á móti útgáfu rekstrarleyfis að því undanskildu að starfsemin uppfylli allar kröfur eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits. |
| |
|
|
| 7. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og kynnti hvernig staða vinnu við skipulagsins stendur. Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Nefndin hvetur til að skoðaðar verði aðrar staðsetningar fyrir hótelbyggingar á svæðinu þar sem hún telur þær of nálægt lóninu og þjóðveginum og komi til með að trufla upplifun ferðamanna af svæðinu. Verði þessi staðsetnig fyrir valinu bendir umhverfis- og skipulagsnefnd á að ströng skilyrði verði á deiliskipulagi varðandi byggingarlýsingu, gerð húsa, hæð þeirra, efnisvali o.s.frv. Nefndin setur sig ekki á móti staðsetningu þjónustubygginga skv. uppdrætti. |
| |
|
|
| 8. |
201105003 - Reglur um úthlutun á byggingarrétti fyrir húsnæði undir frístundabúskap |
|
|
Rúnar kynnti málið fyrir fundarmönnum. Nefndin bendir að bæta við 2. grein að farið verður eftir búfjársamþykkjum sveitarfélagsins. Að öðru leiti lýst umhverfis- og skkipulagsnefnd vel á reglur um úthlutun á byggingarrétti fyrir húsnæði undir frístundarbúskap og leggur til að þær verði teknar fyrir í bæjarráði. |
| |
|
|
| 9. |
201104051 - Umsókn um lóðir 15 við Ægissíðu |
|
|
Rúnar fór yfir umsóknina og kynnti hana fyrir fundarmönnum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um lóð nr. 15 við Ægissíðu. |
| |
|
|
| 10. |
201104051 - Umsókn um lóðir 13 við Ægissíðu |
|
|
Rúnar fór yfir umsóknina og kynnti hana fyrir fundarmönnum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um lóð nr. 13 við Ægissíðu. |
| |
|
|
| 11. |
200907004 - Land fyrir skotæfingar |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði og kynnti drög að deiliskipulagi svæðisins. Umhverfis- og skipulagsnefnd líst vel á hugmyndir að staðsetningu skotæfingarsvæðis og leggur til að áfram verði unnið að málinu. Einnig bendir nefndin á að svæðið verði skilgreint sem skotæfingarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| 12. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Rúnar kynnti umsókn um að koma fyrir listaverki við sjávarsíðuna á Höfn. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að finna heppilega staðsetningu fyrir listaverkið.
Rúnar kynnti fyrirhugaða byggingu á Flatey á Mýrum. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í málið en óskar eftir formlegri umsókn og fullnaðargögnum áður en endanleg afgreiðsla liggur fyrir.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30