Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 13
13. fundur
Fundur í umhverfis og skipulagsnefnd haldin í ráðhúsi, miðvikudaginn 4. maí 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Friðrik Þór Ingvaldsson, Björn Ingi Jónsson, Lars Jóhann Andrésson, Haukur Ingi Einarsson, Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson og Steinþór Hafsteinsson.
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
1. 201102085 Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr – grenndarkynning
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir því að engar athugasemdir hafi borist. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu á bílskúr í samræmi við grenndarkynningargögn að því gefnu að fullnaðargögn berist.
2. 201102078 Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús Hof I – grenndarkynning
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði, kynnti hann athugasemdir sem bárust frá Fornleifavernd ríkisins, Þjóðminjaverði Íslands og Erni Bergssyni á Hofi. Einnig kynnt bréf Valdimars Harðarsonar Arkitekts hússins ásamt fylgigögnum. Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um athugasemdirnar, nefndin er sammála því að láta grenndarkynninguna taka gildi með þeim breytingum að afstaða hússins færist í samræmi við athugasemdir landeigenda á Hofi um færslu hússins um 5 m. Einnig verði farið eftir umsögn og reglum Fornminjaverndar ríkisins. Nefndin samþykkir að veita byggingarleyfi í samræmi við ofangreint og að fullnaðargögn berist. Starfsmönnum falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir í samræmi við umræður á fundinum.
3. 201104067 Umsókn um byggingarleyfi Brekka gistiheimili
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir helstu hugmyndum að uppbyggingu gistiheimilis að Brekku í Lóni. Lagði hann fram gögn unnin af Árna Kjartanssyni, Glámu – Kím, verknr. 1004019. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir framkvæmdunum í samræmi við framlögð gögn og uppfylltum skilyrðum eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
4. 201104079 Umsókn um uppsetningu á lyftibúnaði Ófeigstanga 17 veiðafæragerð
Friðrik vék af fundi undir þessum lið. Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingu á lyftibúnaði að því gefnu að fullnaðargögn berist og vísar málinu til Hafnarstjórnar. Haukur kynnti hugmyndir að takmörkun akstur á hafnarsvæðinu og hugmynd að enduruppbyggingu á akstursleið að bræðslu um Ófeigstanga.
5. 201104038 Fráveita frá tjaldsvæði – endurbætur
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköðuðust um hvort betra er að tengja fráveituna við Hlíðartúnið í stað þess að tengja hana við Vesturbraut. Nefndin er sammála um að vísa málinu til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6. 201009035 Opin svæði á Höfn
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði, gerðar voru breytingar á forgangslistanum. Starfsmönnum falið að vinna úr málinu.
7. 200812072 Nýtt kirkjugarðsstæði – deiliskipulag
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir kynningarfundi og athugasemdum sem bárust á honum. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu til fyrri umfjöllunar í bæjarstjórn með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
8. 200805074 Hafnarvík Heppa – deiliskipulag
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði, lagði fram fyrstu hugmyndir að deiliskipulagi fyrir svæðið. Umræður sköpuðust um málið, rætt var um hvort eigi að útbúa bílastæði á lóð Hafnarbrautar 6, fjarlægja byggingarreit milli Pakkhúss og Graðalofts, gera ráð fyrir að Mikligarður verði lengdur í samræmi við sitt upphaflega form, endurskoðað verði staðsetning Gömlu búðar m.t.t þess að færa hana nær sýnum upprunalega stað, endurskoðað verði bílastæði við sláturhúsið, farið betur yfir byggingarreiti uppi á hól og hvort eigi að brjóta upp í þrjá byggingareiti langa byggingarreit austan við staðsetningu Gömlu búðar og aðlaga að Víkurbraut og skoða hvort hægt er að koma fyrir bílastæðum á baksvæði þeirra byggingareita, einnig að skoðað verði helgunarsvæði fyrir framan Miklagarði en annað svæði verði skilgreint sem hafnarsvæði.
9. 200706082 Umferðaröryggi – hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði, töluverðar umræður sköpuðust um málið. Nefndin er sammála um að vinna í samræmi við skýrslu Mannvits, nefndin telur brýnt að horfa næst á hraðatakmarkandi aðgerðir við Brautarholtið og felur starfsmönnum að ræða við veghaldara um mögulegar úrbætur. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakka fyrir veglega gjöf frá Slysavarnardeildinni framtíðar.
10. 200809015 Skilti við Sunnuhlíð – bréf Sigurgeirs Jónssonar um málið
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Til kynningar.
11. 201104080 Fyrirspurn um stækkun lóðar nr. 22 í Stafafellsfjöllum
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að verið er að vinna að deiliskipulagi á svæðinu. Nefndin bendir því umsækjanda á að koma óskum sínum á framfæri við landeigendur sem nú vinna að endurnýjun lóðayfirlits fyrir svæðið.
12. 201104051 Umsókn um lóðir 13-15 við Ægissíðu
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Töluverðar umræður sköpuðust, nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að bæjarráð fari yfir úthlutun fyrir frístundasvæðið á Ægisíðu.
13. 201104078 Umsókn um stækkun lóðar nr. 40 við Ægissíðu
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því að umsækjandi fái afnotarétt af því svæði sem sótt er um.
14. 201104077 Umsókn lóð nr. 38 við Ægissíðu
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Töluverðar umræður sköpuðust, nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að bæjarráð fari yfir úthlutun fyrir frístundasvæðið á Ægisíðu.
15. 201104081 Umsókn um lóðir 1 og 3 við Ægisíðu
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Töluverðar umræður sköpuðust, nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að bæjarráð fari yfir úthlutun fyrir frístundasvæðið á Ægisíðu.
16. 201103016 Mannvirkjalög – gildistaka
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Málið til kynningar.
17. 201105001 Fyrirspurn um uppsetningu skilta
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir fullnaðargögnum áður en til afgreiðslu málsins kemur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:10


