Umhverfis- og skipulagsnefnd

Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 10

10. fundur

  

Fundur í umhverfis- og skipulagsnefnd haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 2. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson, 

Fundargerð ritaði:  Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs

Dagskrá:

 1.    201101025 - Undirbúningur framkvæmda við Opin svæði fjárhagsárið 2011 - 2014

Lagðar fram hugmyndir að frágangi í kringum Sindrabæ, þar sem m.a er gert ráð fyrir að bæta aðgengi allra að húsinu, steypa kanta við plönin beggja vegna við Sindrabæ, helluleggja á milli innganga austan megin við húsið, lagfæra flatir fyrir framan inngang og ganga frá göngustíg við Landsbanka niður að Ránarslóð. Einnig rætt um forgangsröðun endurbóta gangstétta, Ásgrímur benti á að gangstéttir bæjarins þurfi orðið töluvert viðhald og augljóst sé að mikill kostnaður fylgi því að lagfæra gangstéttir til fulls, huga þurfi að endurbótum lagna undir gangsstéttum samhliða endurbótum á þeim.

Ásgrímur lagði fram eftirfarandi bókun:

• Árið 2011 verði gengið frá svæðinu við nýja bílastæðið fyrir austan Heppuskóla og við Sindrabæ. Einnig verði hafinn vinna í að laga og lengja gangstéttir, t.d. við enda á Hafnarbraut.
• Veturinn 2011-2012 verði notaður í að undirbúa aðgerðir sem ráðist verður í um vorið 2012, með áherslu á félagsheimili í sveitum og miðbæjarsvæðið.
• Árið 2012 verður lagað til við félagsheimilin, miðbæjarsvæðið klárað, lokið við frágang smærri svæða, tengingar á milli gangstétta lagaðar ofl þess háttar. Árið 2012 verður hafinn undirbúningur að framlengja strandstíginn frá Leiðarhöfða út í Ósland.
• Veturinn 2012-2013 verði undirbúið að ráðast í stærri lagfæringar á gangstéttum. Þetta verkefni verður að framkvæma með Hornafjarðar veitum.
• Árið 2013 verði stór hluti gangstétta á Hafnarbraut lagaðar og á öðrum götum ef úr nægum fjármunum verður að spila.
• Árið 2014 verði notað haldið áfram með lagfæringar á gangstéttum.
• Umhverfis- og skipulagsnefnd undirstrikar mikilvægi þess að fá að vita með sem mestum fyrirvara áður en malbikunar flokkur kemur, svo undirbúa megi stíga og götur sem nefndin vill laga með malbiki.

Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála ofangreindum áherslum og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.

2.    200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi

Drög að matslýsingu lögð fram, gerðar voru smávægilegar breytingar á drögunum að matslýsingunni. Starfmönnum falið að senda drögin til umsagnar Skipulagsstofnunnar. Haukur kynnti fundargerðina sem tekin var saman eftir íbúafund og þá þætti sem fram kom á fundinum er snýr að störfum umhverfis- og skipulagsnefndar. Nefndin óskar eftir því að fá fundargerðina senda eftir meðferð starfsmanna.

3.    201102069 - Fráveita við Leirusvæði

Haukur Ingi gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum á fráveitu á Leirusvæði, sagði hann að framkvæmdirnar væru til þess fallnar að bæta fráveitukerfi Leirusvæðisins frá því sem nú er og gerði grein fyrir samspili þeirra og fyrirhugaðrar dælingar úr höfninni. Framkvæmdin er áfangi af framtíðarlausn fyrir fráveitu Leirusvæðisins en gert er ráð fyrir að annað hreinsiþrep verði komið aftan við þessa framkvæmd sem hreinsar fráveituvatnið enn betur áður en því verður veitt út í Mikleyjarál. Björn Ingi benti á mikilvægi þess að kanna hvort heimilt verði að veita fráveituvatni út í Mikleyjarálinn áður en ráðist verður í fullar aðgerðir. Gunnar Páll benti á hvort ekki væri rétt að hafa útrásina á sama stað og núverandi útrás við Standey. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir á betrumbótum fráveitu á Leirusvæði og felur starfsmönnum að vinna umsókn um framtíðarlausn á fráveitunni og senda þeim aðilum er málið varðar.

4.    201102077 - Hreinsunardagur/helgi/vika

Ásgrímur lagði til að hreinsunarvika verði haldin í sveitarfélaginu 4 - 10 apríl þar sem stofnanir sveitarfélagsins, íbúar, önnur fyrirtæki og lögbýli verði hvött til að taka til í kringum sitt nánasta umhverfi. Lagði hann einnig til að boðið verði upp á flutning stórra hluta frá lögbýlum að þessu tilefni.

5.    201102068 - Ósk um rif á strompi á félagsheimilinu Holti á Mýrum.

Sótt er um leyfi fyrir niðurrif á strompi á félagsheimilinu Holti, Mýrum, s.b.r meðfylgjandi teikningar. Umsækjandi er Björn Imsland f.h Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gefur leyfir fyrir niðurrifi á strompinum í samræmi við framlögð gögn.

6.    201102066 - Orkusparandi aðgerðir

Sótt er um leyfi fyrir uppsetningu á varmadælum í Íþróttahúsi, umsækjandi er Haukur Ingi Einarsson f.h Sveitarfélagsins Hornafjarðar samkvæmt framlögðum gögnum unnum af Bjarna Jakobssyni dagsettum 17.02.2011

Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu, um er að ræða uppsetningu á varmadælum í Íþróttahúsinu á Höfn, um tilraunarverkefni er að ræða þar sem markmiðið er að draga úr orkunotkun í Íþróttahúsinu. Gangi áætlanir eftir verði sótt um að setja upp sambærilegar lausnir í öðrum sambærilegum stofnunum sveitarfélagsins þar sem því verði við komið. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir uppsetningu á varmadælum í Íþróttahúsi í samræmi við framlögð gögn unnum af Bjarna Jakobssyni.

7.    201012018 - Umsókn um byggingarleyfi f. íbúðarhús Hof I Austurhús

Haukur Ingi gerði grein fyrir forsögu málsins og greindi frá vinnu sem nú er í gangi varðandi deiliskipulag svæðisins, fram kom í máli Hauks að eftir samtöl við nokkra ábúendur að Hofi sé stefnt að því að klára deiliskipulag svæðisins innan 12 – 16 mánaða. Í ljósi þessarra upplýsinga ákveður umhverfis- og skipulagsnefnd að vísa málinu í fullnaðar grenndarkynningu þar sem öllum íbúum á Hofi verði kynnt málið ásamt sóknarnefnd, þjóðminjaverði og Fornleyfavernd ríkisins, starfsmönnum falið að fylgja grenndarkynningunni eftir og kynna niðurstöðu hennar um leið og hún liggur fyrir.

8.    201102078 - Umsókn um byggingarleyfi

Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við Hof 1 Austurhús, gistiheimili samkvæmt teikningum unnum af Halldóri Guðmundssyni, THG Arkitektum dags. 22.02.2011. Umsækjandi er Knútur Bruun f.h Gesthof ehf.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir um 40 m2 viðbyggingu við gistiheimilið að Hofi 1 Austurhúsum, umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vísa málinu í grenndarkynningu fyrir viðbyggingunni í samræmi við framlögð gögn unnum af Halldóri Guðmundssyni dags. 22.02.2011 og með fyrirvara um samþykki HAUST og eldvarnareftirlits. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir landeigendum á að huga að bílastæðamálum fyrir þá þjónustu sem veitt er á svæðinu.

9.    201102038 - Umsókn um stækkun lóðar Júllatúni 15

Sótt er um leyfi fyrir stækkun lóðar að Júllatúni 15, samkvæmt gögnum dagsettum 13. febrúar 2011, umsækjendur eru Þóra Björg Gísladóttir og Gísli Karl Ágústsson.

Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því að lóð í vestur verði stækkuð í samræmi við ósk umsækjanda. Nefndin mælir einnig með því að umsækjanda fái stækkun lóðar um 3 m og afnotarétt af 4 m til viðbótar á lóð í norðurátt í samræmi við umsókn. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að eiga greiðan aðgang að öllum lögnum og brunnum sem kunna að lenda innan viðbótar stækkunar lóðar.

10.  201102046 - Umsókn um stækkun lóðarinnar að Dalbraut 4

Sótt er um leyfi fyrir stækkun lóðar að Dalbraut 4, samkvæmt ódagsettu bréfi. Umsækjandi er Vigfús Ásbjörnsson

Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því að umsækjanda verði veittur afnotaréttur af þeirri lóðastækkun sem sótt er um. Nefndin gerir ekki athugasemd við að steinveggur verði sagaður niður til hálfs í samræmi við umsókn.

11.  201102009 - Ósk um minnkun lóðarinnar að Fiskhól 1

Sótt er um leyfi fyrir minkun lóðar að Fiskhól 1 í samræmi við framlögð gögn dags. 21. janúar 2011. Umsækjandi er Arnór Kristjánsson.

Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með því að lóðin verði minnkuð í samræmi við ósk umsækjanda.

12.  201102067 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir gluggaskiputum á Kirkjubraut 55

Sótt er um leyfi fyrir gluggaskiptum á Krikjubraut 55, samkvæmt meðfylgjandi gögnum, umsækjandi er Anna María Kristjánsdóttir.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gluggaskiptin á húsi Kirkjubrautar 55 í samræmi við framlögð gögn.

13.  200909003 - Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum

Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur leitað eftir sjónarmiðum Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum, landeigendum og Skipulagsstofnun um vinnu endurskoðunar deiliskipulags í Stafafellsfjöllum. Nefndin er sammála um að á undanförnum árum hefur ýmislegt sem framkvæmt hefur verið á umræddu svæði verið gert án þess að skipulagi hafi verið fylgt í hvívetna. Nefndin telur hins vegar ekki jafnræði fólgið í að krefja einn af eigendum sumarhúsa þar sem framkvæmd kann að stangast á við skipulag, að fara í breytingar þannig að ótvírætt sé að farið sé eftir skipulagi. Af þeim sökum telur nefndin ekki rétt að fara fram á við eiganda hús á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum að færa húsið.

Umhverfis og skipulagsnefnd vill með þessu ekki gera lítið úr þeim sjónarmiðum sem liggja til grundvallar kröfu eigenda sumarhúss á lóð nr. 10. Mikilvægt er að skipulagsyfirvöld, Félag sumarhúsaeigenda og landeigendur vinni að því að fara yfir skipulag í Stafafellsfjöllum og stefnu sem á að fylgja með frekari uppbyggingu mannvirkja og frágang þeirra.

Starfsmönnum falið að koma bókun nefndarinnar á viðkomandi aðila.

14.  201102079 - Hafnarbraut 14

Haukur Ingi lagði til að eigendum Hafnarbrautar 14 verði skrifað bréfi þar sem fram komi að eigendum verði gert kleift að gera grein fyrir framkvæmdaráætlun sem miði að því að koma húsinu í viðunandi horf þannig að það valdi ekki líti á umhverfi Hafnarbrautarinnar og augljósri hættu sem það veldur. Nefndin óskar eftir því að viðunandi framkvæmdum og endurbótum á húsinu og umhverfi þess verði lokið fyrir 1. September 2011 að öðrum kosti verði farið fram á niðurrif hússins.

15.  201102081 - Ósk um heimild til að rífa sumarhús á lóð nr. 41 í Stafafellsfjöllum.

Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á sumarhúsi á lóð 41 í Stafafellsfjöllum. Umsækjandi er Páll Róbert Matthíasson.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir niðurrif á sumarbústaðnum, nefndin bendir umsækjanda á að sækja þarf um niðurrif hús til HAUST.

16.  201102080 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir sumarhúsi á lóð 41 í Stafafellsfjöllum.

Sótt er um leyfi fyrir byggingu á sumarhúsi á lóð 41 í Stafafellsfjöllum samkvæmt umsókn með verknúmer 11-06, dagsett 28.02.2011. Umsækjandi er Páll Róbert Matthíasson.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingu sumarhússins á lóð 41 í Stafafellsfjöllum í samræmi við framlögð gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni dagsettum 28.02.2011. Nefndin bendir umsækjanda á að hafa samráð við HAUST og byggingarfulltrúa um endanlegan frágang fráveitu.

17.  201102082 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir að setja niður 40 feta timburklæddan gám

Sótt er um leyfi fyrir að setja niður 40 feta timburklæddan gám niður á jörðina Kot í Nesjum, í samræmi við gögn unnum af Svavari Sigurjónssyni, umsókn dagsettri 28.02.2011, umsækjandi er Aðalsteinn Gíslason.

Ásgrímur vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir niðursetningu á timburklæddum gám í samræm við framlögð gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni dags. 28.02.2011.

18.  201102083 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir íbúðarhúsnæði á jörðinni Koti í Nesjum

Sótt er um leyfi fyrir að byggja einbýlishús á jörðina Kot í Nesjum, í samræmi við gögn unnum af Svavari Sigurjónssyni, umsókn dagsettri 28.02.2011, umsækjandi er Aðalsteinn Gíslason.

Ásgrímur vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingu íbúðarhúsnæðis að Koti í Nesjum í samræmi við framlögð gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni dags. 28.02.2011

19.  201102084 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir fjárhúsi á jörðinni Koti í Nesjum.

Sótt er um leyfi fyrir að byggja fjárhús á jörðina Kot í Nesjum, í samræmi við gögn unnum af Svavari Sigurjónssyni, umsókn dagsettri 28.02.2011, umsækjandi er Aðalsteinn Gíslason.

Ásgrímur vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir byggingu fjárhúsa að Koti í Nesjum í samræmi við framlögð gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni dags. 28.02.2011

20.  201102085 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir bílsskúr

Sótt er um leyfir fyrir byggingu bílskúrs í samræmi við gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni og umsókn dagsettri 28.02.2011. Umsækjandi er Björgvin Sigurjónsson f.h Sigurjóns Gunnarssonar.

Björgvin vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu í grenndarkynningu þar sem íbúum á Hof verður grenndarkynnt málið áður en nefndin tekur afstöðu til þess.


 

21.  201102086 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir að breyta íbúðarhúsi í gistiheimili á Brunnhól Mýrum.

Sótt er um leyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsi yfir í gistiheimili í samræmi við gögn unnum af Svavari M. Sigurjónssyni og umsókn dagsettri 28.02.2011. Umsækjandi er Björgvin Sigurjónsson f.h Jóns Kristins Jónsson.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsókn um fyrirhugaðar breytingar á íbúðarhúsinu með fyrirvara um samþykki HAUST og eldvarnareftirlits.

22.  201103001 - Umsókn um byggingarleyfi, fyrir 50 mastri úti í Standey

Sótt er um leyfi fyrir uppsetningu á 50 m háu mastri úti í Standey á lóð Neyðarlínunnar í samræmi við gögn unnum af Guðjóni Þ. Sigfússyni dags 28.02.2011, umsækjandi er Þórhallur Ólafsson f.h Neyðarlínunar ohf.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsókn með fyrirvara um umsögn ISAVIA.

23.  201102011 - Önnur mál

Ásgrímur ræddi um Hafnarvík Heppu og mikilvægi þess að hefja undirbúning á deiliskipulagi fyrir svæðið, starfsmönnum falið að setja upp tillögu að deiliskipulagsmörkum og vísa til bæjarráðs í samræmi við umræður á fundinum. Nefndin telur mikilvægt að unnið verði hratt í málinu og að ráðgjafar veði fengnir sem fyrst til að vinna að skipulaginu.

Lagðar voru fram hugmyndir að byggingu íbúðarhús inn við Hoffell. Nefndin tekur jákvætt í hudmyndina og óskar eftir fullnaðargögnum um málið áður en til afgreiðslu kemur.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   19:00

Fundargerðir

Dag.grein
08.05.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 44
17.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 43
10.04.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 42
20.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 41
08.03.2013 Fundargerð umhverfis-og skipulagsnefndar 40
07.03.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 39
20.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 38
06.02.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 37
23.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 36
11.01.2013 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 35
05.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 34
03.12.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 33
07.11.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 32
31.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 31
03.10.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 30
12.09.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 29
22.08.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 28
06.06.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 27
11.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 26
09.05.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 25
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
04.04.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 24
22.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 23
07.03.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 22
01.02.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 21
10.01.2012 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 20
06.12.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar  19
02.11.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 18
05.10.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 17
07.09.2011 Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar 16
12.08.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 15
01.06.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 14
04.05.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 13
06.04.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 12
14.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 11
02.03.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 10
18.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 9
02.02.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 8
12.01.2011 Fundur umhverfis- og skipulagsnefndar 7
12.01.2011 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 7
01.12.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6
03.11.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 5
28.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 4
01.09.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3
19.08.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 2
23.06.2010 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1
21.04.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 124
24.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 123
10.03.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 122
10.02.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 120
26.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 119
14.01.2010 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 118
17.12.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 117
11.11.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 116
14.10.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 115
10.09.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 113
12.08.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 112
10.06.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 111
14.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 110
06.05.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 109
29.04.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 108
18.03.2009 Fundargerð  byggingar- og skipulagsnefndar 107
25.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 106
11.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 105
04.02.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 104
14.01.2009 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 103
18.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 102
15.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 101
10.12.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 100
19.11.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 99
08.10.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 98
25.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 97
24.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 96
10.09.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 95
13.08.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 94
17.07.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 93
11.06.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 92
14.05.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91
09.04.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 90
27.03.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 89
19.02.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 88
17.01.2008 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 87
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
19.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 86
12.12.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 85
29.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 84
14.11.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 83
18.10.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 82
27.09.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 81
08.08.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 80
04.07.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79
27.06.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 78
09.05.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 77
11.04.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 76
14.03.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 75
14.02.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 74
10.01.2007 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 73
13.12.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 72
06.11.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 71
11.10.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 70
13.09.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 69
05.07.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 68
07.06.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 67
18.05.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 66
18.04.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 65
08.02.2006 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 64
09.11.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 63
07.09.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 62
09.06.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 61
12.05.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 60
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
14.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
07.04.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsenfndar 58
10.03.2005 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 57
11.11.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 56
21.10.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 55
22.07.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 54
09.06.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 53
05.04.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 52
11.03.2004 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 51
12.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 50
02.02.2004 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 49
11.12.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 48
09.10.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 47
01.09.2003 Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.07.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 46
12.06.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 45
15.05.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 44
09.04.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 43
13.03.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 42
13.02.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 41
09.01.2003 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 40
10.10.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 39
12.08.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 38
14.05.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 37
09.04.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 36
12.02.2002 Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 35
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica