Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 8
8. fundur
Fundur í umhverfis- og skipulagsnefnd haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 2. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson, Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200812072 - Nýtt kirkjugarðsstæði
Málinu frestað þar sem ráðgjafi komst ekki vegna veðurs. Nefndin er sammála um að kalla til aukafundar ef þörf krefur.
2. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Hjalti kom inn á fundinn undir þessum lið. Hjalti ræddi um undirbúningi og næstu skrefum að endurskoðun aðalskipulags, einnig gerði hann grein fyrir fyrirhuguðum íbúafundi sem haldinn verður í lok mánaðarins, helstu viðfangsefni hans og fyrirkomulag íbúafundarins.
3. 201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum
Umræður sköpuðust um drög að textaskilmálum deiliskipulagsins í Stafafellsfjöllum. Engar efnislegar athugasemdir voru lagðar fram, rætt var um aðgengi slökkviliðs að svæðinu. Haukur Ingi gerði grein fyrir vinnu landeigenda og ráðgjafa þeirra að uppdráttum fyrir skipulagssvæðið. Nefndin er sammála um að auglýsa endurskoðað deiliskipulag þegar uppdrættir og samræming gagna hefur átt sér stað. Nefndin er sammála um að vísa drögum að textaskilmálum til umsagnar hjá landeigendum og félagi sumarhúsaeigenda.
4. 201101025 - Undirbúningur framkvæmda við Opin svæði fjárhagsárið 2011 - 2014
Lagðar fram hugmyndir að forgangsröðun framkvæmda sumarið 2011. Nefndin er sammála um að áfangaskipta frágang við Íþróttahúsplan, frágang umhverfis Sindrabæ þar sem aðgengi fyrir alla verði lagfært, skoðuð verði þörf á endurbótum umhverfis félagsheimila, lagfæra aðgengi upp og niður af gangstéttum, klára að ganga frá ófrágengnum gangstéttarbútum og lagfæra gangstéttarhellur sem gengið hafa til. Samhliða þessu verður unnið heildstæð viðhaldsáætlun fyrir endurbætur á gangstéttum, opnum svæðum og frágang umhverfis stofnanir sveitarfélagsins. Lagðar voru fram tillögur að bættu aðgengi að Pakkhúsi þar sem m.a var gerð tillaga að fjölgun bílastæða á götu milli Pakkhús og Hafnarvogar, málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráði. Haukur gerði grein fyrir samskiptum sínum við Þráin Hauksson sem vinnur að tillögum að fjölskylduhreiðrum, nefndin er sammála um að leggja áherslu á svæðið fyrir framan Nýheima.
5. 201101073 - Ósk um leyfi til gluggaskipta með breytingum
Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála um að veita leyfi fyrir gluggaskiptunum í samræmi við framlögð gögn.
6. 201101074 - Ósk um yfirtöku Annel ehf. á afnotarétti á hluta lóðar nr. 6 við Víkurbraut
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við yfirtöku á afnotarétti lóðar nr. 6 við Víkurbraut, nefndin bendir aðilum málsins á að kynna sér lóðaleigusamning sem gerður var árið 2007 og er í gildi fyrir lóðina.
7. 201102004 - Ósk um leyfi fyrir uppsetningu á klæðningu á Kirkjubraut 44 og byggingu bílskúrsþaks.
Björgvin gerði grein fyrir málinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála um að veita leyfi fyrir uppsetningu á klæðningunni og uppbyggingu á bílskúrsþaki með fyrirvara um að fullnaðargögn berist byggingarfulltrúa.


