Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundur umhverfis- og skipulagsnefndar 7
7 . fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 12. janúar 2011 og hófst hann kl. 14:30
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200705114 - Bókun Björns Inga um fyrirkomulag fundarboða og fundartíma
Björn Ingi lagði fram eftirfarandi bókun.
Ég Björn Ingi Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Hornafirði geri athugasemd við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í aðdraganda þessa fundar í Umhverfis- og Skipulagsnefnd. Fyrir rúmri viku var mér tjáð að engin erindi lægju fyrir nefndinni og því væri óþarfi að halda fund, ég vil benda á að samþykkt er fyrir því að fundir nefndarinnar séu fyrsta Miðvikudag hvers mánaðar sem var Miðvikudagurinn fyrir viku. Nú rúmlega viku síðar er boðað til fundar en á dagskráfundarins eru 9 mál. Til fundarins er boðað með tveggja sólahringa fyrirvara eins og kveður á í samþykktum sveitarfélagsins en það er gert án nokkurs samráð við mig sem mér hefði fundist sjálfsögð kurteisi þar sem ekki er um eðlilegan fundartíma að ræða. Þegar ég fer síðan að grennslast fyrir hverju sætti er mér tjáð að einn fundarmaður þurfi að fara á sjó því verði að halda fundinn núna. Ég vil benda á að allir nefndarmenn eru að sinna þessum störfum sem aukavinnu og þurfa því að skipuleggja vinnutíma miðað við áður samþykkta fundartíma nefnda. Sjálfsagt er að verða við að færa fundi þegar því verður við komið ef þess er óskað en það verður að gera að höfðu samráði við alla nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
2. 201012018 - Umsókn um byggingarleyfi f. íbúðarhús Hof I Austurhús
Lögð fram byggingarleyfisumsókn dags 6. desember 2010 um byggingu einbýlihús og gestahús að Hofi 1 Austurhúsi Öræfum, Hönnuður Valdimar Harðarson verk nr. 0884.
Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála um taka ekki afstöðu til umsóknarinnar fyrr en deiliskipulag svæðisins liggur fyrir og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 21. apríl 2010 um deiliskipulag á svæðinu.
3. 201101026 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging við sumarhús Karl í Lóni
Ásgrímur vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um byggingu viðbyggingar við sumarhús að Karli í Lóni í samræmi við gögn frá Svavari M. Sigurjónssyni, dags. 03.01.2011.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir viðbyggingunni í samræmi við framlagðar teikningar.
4. 201101027 - Umsókn um byggingarleyfi, Gestahús á Lóð 28 í Stafafellsfjöllum
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir 15 m2 gestahúsi við lóð 28 í Stafellsfjöllum. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þangað til endurskoðun deiliskiplags verður samþykkt.
5. 201101028 - Umsókn um byggingarleyfi, steypustöð í Hjarðarnesi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um byggingu steypustöðvar í samræmi við teikningar unnum af Svavari M. Sigurjónssyni dags. 10. janúar 2011.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu steypustöðvar í samræmi við framlögð gögn með fyrirvara um samþykki heilbrigðis- og eldvarnareftirlits.
Nefndin er sammála um að ekki komi til frekari framkvæmda á svæðinu fyrr en deiliskipulag af því liggur fyrir.
6. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Sótt er um leyfi fyrir endurbótum á Ráðhúsi og uppbyggingu á Svavarssafni í samræmi við gögn unnum af Árna Kjartanssyni dagsettum í janúar. Haukur Ingi gerði grein fyrir minniháttar breytingum eftir afgreiðslu bæjarráðs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir framkvæmdunum með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits.
7. 200812072 - Nýtt kirkjugarðsstæði
Lagðar feram tillögur um stækkun á núverandi kirkjugarðsstæði. Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála um að vinna deiliskipulagg að stækkun á núverandi kirkjugarði í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum.
8. 201101025 - Undirbúningur framkvæmda við Opin svæði fjárhagsárið 2011 - 2014
Haukur Ingi fór yfir minnisblað um fyrirhugaðar framkvæmdir á opnum svæðum innan sveitarfélagsins. Nefndin sammála um að taka málið aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
9. 200809015 - Fyrirspurn um skilti við Sunnuhlíð
Nefndin bendir á að skilltið var sett upp með samþykki sveitarfélagsins í samvinnu við Vegagerðarinnar og stendur því með leyfi skipulagsyfirvalda sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd er sammála um að hafna framlagðri beiðni.
10. 200909003 - Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Haukur Ingi gerði grein fyrir söðu mála, umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu starfsmönnum falið að vinna drög að nýju deiliskipulagi og afgreiðslur nefndarinnar frá því núverandi skiplag var samþykkt 1997 og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.


