Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 4
4 . fundur
Fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 28. september 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Óskar Sigurjónsson, Lars Jóhann Andrésson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Erlingur Freyr Jensson hjá Vegagerðinn, kynnti frumhönnun vegstyttinga Vegagerðarinnar innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Málið verður tekið fyrir aftur eftir að skýurslur Vegagerðarinnar um málið verður kynnt nefndinni.
2. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Sigbjörn Kjartansson kynnti deiliskipulagið sem fyrri nefnd hefur unnið að síðustu misseri. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
3. 201008067 - Kirkjugarðsstæði á Höfn
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir bókun sóknarnefndar og mælir með að núverandi kirkjugarðsstæða verði stækkað í samræmi við tillögu nr. 3 og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.
4. 201009035 - Opin svæði á Höfn
Lagðar fram tillögur að skipulagi aðkomuleiða inn á Höfn, gróður, plan, skilti, gönguleiðir o.fl
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur.
5. 201008066 - Sorpdagatal 2011
Málinu vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og varaformanni umhverfis- og skipulagsnefndar
6. 201009018 - Ósk um leyfi fyrir nýtingu efri hæðar Bugðuleiru 6 fyrir starfsmannaíbúð
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir umsögn frá HAUST og eldvarneftirliti, einnig upplýsingum um hvort ekki þurfi að kynna öðrum eigendum rýma fyrirhugaða starfsemi.
7. 201009029 - Umsókn um stofnun fasteignarinnar Flatey 2 fastanr. 160088 í fasteignaskrá
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð landskipti á jörðinni Flatey 2.
8. 201009084 - Endurskoðun samþykktar um gatnagerðargjöld
Starfsmönnum falið að vinna tillögu að nýrri samþykkt um gatnagerðargjöld og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
9. 201009068 - Merkingar við skóla - gjöf frá Lionskl.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í málið og vísar því til vinnu starfsmanna.
10. 201009057 - Reiðhjólagrindur við Hafnarskóla
Starfsmönnum falið að gera tillögur að útfærslu í samráði við stjórnendur Grunnskóla Hornafjarðar.
11. 201009052 - Eftirlitsskýrsla v. urðunar sorps í Lóni
Til kynningar.
12. 201009060 - Ný skipulagsreglugerð
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir áliti Sambands ísl. sveitarfélaga um málið. Nefndin er sammála um að halda málinu opnu þannig að nefndarmenn geti komið með athugasemdir á umsagnartíma fyrirugaðrar vinnu við setningu nýrrar Skipulagsreglugerðar.
13. 201009067 - Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefndar
Til kynningar.
14. 200705114 - Önnur mál
Óskað er eftir endurnýjun leyfis til að reysa viðbyggingu við ferðaþjónustuna á Brunnhól. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja leyfið í samræmi við áður útgefið leyfi.
Haukur Ingi gerði grein fyrir athugasemd sem barst um að hafin sé atvinnustarfsemi í íbúðarhúsnæði. Starfsmanni falið að kanna málið og óska skýringa á málinu hjá viðkomandi aðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


