Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3
3. fundur
Fundur í Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 1. september 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson, Lars Jóhann Andrésson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201008065 - Ósk um leyfi til endurbóta utanhúss - Hlíðartún 39
Sótt er um stöðuleyfi fyrir gám við Hlíðartún 39 á Höfn, umsækjendur eru Guðni Valþórsson og Lilja Björg Jónsdóttir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs fyrir gámnum með fyrirvara um að umhverfi í kringum gáminn verði haldið snyrtilegu. Friðrik Þór sat hjá við afgreiðslu málsins. Nefndin tekur jákvætt í fyrirhugaðar framkvæmdir á gluggaskiptum og skiptum á klæðningu í samræmi við riss frá umsækjendum og óska eftir frekari gögnum til að geta tekið afstöðu til þessa máls. Umsækjanda er bent á að huga að kröfum eldvarnareftirlits um opnanleg fög á gluggum.
2. 201008066 - Sorpdagatal 2011
Sorpdagatal, fyrsta uppkast af dagatalinu í formi vinnuskjals, óskað er eftir tillögum að frekari upplýsingum á dagatalið.
Umræður sköpuðust um upplýsingar sem væri heppilegt að koma fyrir á sorpdagatalinu. Nefndarmenn eru sammála um að koma upplýsingum á starfsmenn á meðan vinnu við gerð dagatalsins stendur.
3. 200910007 - Vinnufundur í bygg/skip um málefni frístundabyggðar í Stafafellsfjöllum
Áframhaldandi vinna við endurskoðun deiliskipulagsskilmála í Stafafellsfjöllum.
Starfsmanni falið að senda drögin með þeim breytingatillögum sem fram komu á fundinum til umsagnar til landeigenda og stjórnar sumarhúsaeigenda.
4. 201008067 - Kirkjugarðsstæði á Höfn
Kirkjugarðsstæði á Höfn, lagðar fram tillögur að stækkun í samræmi við umræður síðasta fundar, framlögð gögn eru minnisblað dags. 27.08.2010 ásamt tveim tillögum á teikniformi. Óskað er eftir umræðum um málið á fundinum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í framlagðar tillögur. Umræður sköpuðust um hvort hægt væri að bæta við kirkjugarðsstæðum norðan við kirkjugarðinn og í kringum kirkjuna. Starfmönnum falið að vinna áfram að málinu og kynna tillögurnar fyrir sóknarnefnd og rekstraraðilum í kring.
5. 201008069 - Ósk um leyfi til skipta út glugg fyrir hurð og byggingu sólpalls
Sótt er um leyfi til að skipta út glugga fyrir hurð og byggja sólpall í samræmi við framlagðar tillögur unnar af Helga Má Pálssyni ódagsett.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu sólpalls og ísetningu hurðar í stað glugga í samræmi við teikningu unna af Helga Má Pálssyni. Nefndin bendir umsækjanda á að fá formlegt samþykki meðeigenda hússins áður en hafist er handa við framkvæmdirnar.
200705114 - Önnur mál
Haukur Ingi gerði grein fyrir áætlunum um pallasmíði við Austurbraut 20. Nefndin felur starfsmönnum að vinna að málinu með umsækjanda.
Óskað eftir leyfi fyrir nýtingu hluta húsnæðis á efri hæð Bugðuleiru 6, starfmönnum falið að afla nánari upplýsinga um málið, nefndin er sammála um að taka erindið fyrir á næsta fundi.
Gunnar Páll spurðist fyrir um vegöryggi við Lónsafleggjara. Starfasönnum falið að afla upplýsinga um málið og leggja fram fyrir næsta fund nefndarinnar.
Lars spurðist fyrir um almennar umgengnisreglur á gámasvæði við Álaugareyjarveg. Starfsmönnum falið að kanna málið.


