Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 2
2. fundur
Fundur í Umhverfis- og skipulagsnefnd haldinn í Ráðhúsi fimmtudaginn 19. ágúst 2010 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Hugrún Harpa Reynisdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201008038 - Umsókn um leyfi til byggingar garðskála
Sótt er um leyfi til að byggja garðsskála við Vogabraut 5. Umsækjandi er Halldór H. Hilmarsson
Starfsmenn kynntu málið. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu garðsskála í samræmi við framlögð gögn. Eldvarnaeftirlit hefur yfirfarið gögnin og gerir ekki athugasemdir.
2. 201007013 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja frístundahús í landi Hofsness, Öræfum, samkv. gögnum frá verkfræðistofunni Mannvit, gerðum af Sveini Valdimarssyni,arkit. Verknr. 3.141.255 dags. 14.07.2010. Umsækjandi er Aron Franklín Jónsson, Hofsnesi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu frístundarhús í landi Hofsness, Öræfum, í samræmi við framlögð gögn að því gefnu að umsækjandi skili inn lagnateikningum ásamt meistaraábyrgð. Eldvarnareftirlit hefur yfirfarið gögnin og gerir ekki athugasemdir.
3. 201007038 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir timburgámahús á Dynjanda
Sótt er um leyfi til að byggja salernisaðstöðu úr gám sem klæddur verður timbri samkvæmt gögnum frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðum af Svavari M. Sigurjónssyni dag. 06.08.2010. Umsækjandi er Hanný Heiler
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu salernisaðstöðu í landi Dynjanda, Nesjum, í samræmi við framlögð gögn að því gefnu að umsækjandi skili inn burðarþols- og lagnateikningum ásamt meistaraábyrgð og uppfylltum kröfum Heilbrigðiseftirliti suðausturlands. Eldvarnareftirlit hefur yfirfarið gögnin og gerir ekki athugasemdir.
4. 201008037 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja malargeymslu í landi Horns, Nesjum, samkvæmt gögnum frá Verkfræðiþjónustunni gerðum af Svavari M. Sigurjónssyni dagsettum 26.07.2010. Umsækjandi er Ómar Antonsson
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu malargeymslu í landi Horns, Nesjum, í samræmi við framlögð gögn að því gefnu að umsækjandi skili inn burðarþols- og lagnateikningum ásamt meistaraábyrgð. Eldvarnareftirlit hefur yfirfarið gögnin og óskar eftir að taka bygginguna út áður en hún er tekin í notkun.
5. 201008036 - Umsókn um leyfi til gluggaskipta í húsinu Hafnarbraut 7
Sótt er um leyfi fyrir gluggaskiptum á efri hæð Hafnarbrautar 7. Umsækjandi er Sigurbergur Olsen
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir gluggaskiptunum í samræmi við framlögð gögn. Umsækjanda er bent á að huga að kröfum eldvarnareftirlits um opnanleg fög á gluggum.
6. 201006036 - Ósk um stækkun lóðar nr. 53 við Ægissíðu
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 29. júní, 2010, til umhverfis- og skipulagsdnefndar, erindi Helga Karlssonar, þar sem óskað er stækkunar á lóð nr. 53 við Ægissíðu úr 3000,0 ferm. í 4754,0 ferm.
Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með að lóðin verði stækkuð í samræmi við framlagða tillögu með þeim kvöðum að sveitarfélagið hafi heimild til að hnika til lóðamörkum fyrir göngustígagerð samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti.
7. 201007018 - Ósk um lóð undir smáhýsi
Ósk um lóð undir smáhýsi. Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar á 507. fundi sínum 12. júlí s.l
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í hugmyndina en bendir á að vinna við endurskoðunar aðalskipulags er í vinnslu og að umrætt svæði sé samkvæmt núverandi aðalskipulagi hafnarsvæði. Nefndin mælir því með að málinu verði vísað til vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
8. 201008022 - Umsókn um lóð - gerð lóðarleigusamnings
Umsókn um gerð lóðaleigusamnings vegna ræktunarlands nr. 160068. Umsækjandi er Guðmundur Jónsson
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt núgildandi aðalskipulagi er umrætt svæði ætlað undir íbúðabyggð og bendir einnig á fyrri stefnu sveitarfélagsins að frístundabyggingar á þessu svæði verði fjarlægðar um leið og núverandi eigendur hætti starfsemi þar. Nefndin mælir með að sveitarfélagið geri samkomulag við umsækjanda um að hann fái að vera með húsnæði á lóðinni þangað til hann hætti starfseminn og að þeim tíma liðnum verði húsið fjarlægt.
9. 201008002 - Fækkun hreindýra á svæði 9
Fækkun hreindýra á svæði 9. Bæjarráð vísaði málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar á 508. fundi sínum 3. ágúst s.l
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur að mörgu leiti undir áhyggjur veiðieftirlitsmanna um of fá dýr á svæði 9. Nefndin mælir með því að fylgst verði áfram með málinu í samstarfi við Umhverfisstofnun.
10. 200905043 - SAMÞYKKT um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Samþykktin sem staðfest er af Umhverfisráðuneytinu verður kynnt á fundinum. Samþykktin send út í tölvupósti.
Töluverðar umræður sköpuðust um almenna umhirðu innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum að kynna íbúum og fyrirtækjum samþykktina vel og gefa aðilum tækifæri á að taka til á lóðum sínum, að öðru leiti hvetur nefndin starfmenn að beita samþykktinni þegar það á við.
11. 201008028 - Drög að endursk. landsáætlun um úrgang 2010-2022
Óskað eftir umfjöllun um drög að endurskoðaðri landsáætlun um úrgang 2010-2022. Drögin send út í tölvupósti.
Haukur Ingi gerði grein fyrir drögunum, sagði hann að drögin væru í vinnslu og því opið plagg fyrir nefnarmenn að koma með ábendingar og spurningar. Töluverðar umræður sköpuðust um úrgangsmál í sveitarfélaginu. Starfmönnum falið að vinna sorpdagatal fyrir árið 2011 í samstarfi við sorphirðuaðila, sorpdagatalið innihaldi þá daga þar sem losað er heimilissorp, grenndargámastöðvar o.fl þætti.
12. 200910007 - Vinnufundur í bygg/skip um málefni frístundabyggðar í Stafafellsfjöllum
Endurksoðun á deiliskipulagsskilmálum. Tillaga að endurskoðuðum greinum lagðar fram og óskað eftir umfjöllun.
Töluverðar umræður sköpuðust um greinargerðina, starfsmönnum, formanni og Birni Inga falið að koma með tillögu að breytingum fyrir næsta fund.
13. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Endurskoðun aðalskipulag áframhaldandi umræður.
Ásgrímur fór yfir fyrirhugað ferli endurskoðunar á aðalskipulagi, gerði hann grein fyrir tímaramma og fyrirhuguðu verkferli. Starfsmanni falið að senda gögn á nefndarmenn sem unnin hafa verið á síðasta kjörtímabili sem og gögn um núgildandi aðalskipulag. Starfsmanni einnig falið að senda samantekna verkáætlun við vinnu endurskoðunar aðalskipulags.
14. 201002032 - Umsókn um lóð - Skeljungur
Áframhaldandi vinna við deiliskipulag undir bensínafgreiðslustöð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn um lóð á gatnamótum Hafnarbrautar og Vesturbrautar þar sem nefndin telur mikilvægt að halda frá svæði fyrir fyrirhugað hringtorg sem tengist veglagningu frá Vesturbraut yfir á Leirusvæði samkvæmt núgildandi aðalskipulagi. Nefndin leggur til að lóð undir bensínafgreiðslustöð verði annaðhvort norðan við kirkju Hvítasunnusafnarðarins við Hafnarbraut 59 eða norðan við lóð Áhaldahússins við Álaleiru 2 þar sem fyrirhugað vegstæði þjóðvegar í þéttbýli mun liggja.
15. 200705114 - Önnur mál
Sótt er um leyfi til að byggja tvöfaldan bílskúr á lóð Silfurbrautar 7c, samkvæmt teikningum frá Varmamótum, dags 27.05.2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu bílskúrsins á lóð Silfurbraut 7c, í samræmi við framlögð gögn að því gefnu að umsækjandi skili inn burðarþols- og lagnateikningum ásamt meistaraábyrgð. Eldvarnareftirlit hefur yfirfarið gögnin og gerir ekki athugasemdir.
Kirkjugarður á Höfn
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfmönnum að koma með tillögu að stækkun á núverandi krikjugarði.
Fundartímar umhverfis- og skipulagsnefndar
Nefndin samþykkir að fundir nefndarinnar verði fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 16:00
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


